Fréttir
| 24.jan. 2012 Það snjóar og snjóar og eiginlega var ekkert sérstaklega gott reiðfæri í dag. Um tíma hlóðst í hófinn og svo var hált undir snjónum og frekar erfitt fyrir hestana að fóta sig. All er hvítt yfir að líta og snjórinn hangir á trjánum og húsþökum. Þetta væri flott veður um jólin en er aðeins seint á ferðinni. Kiddi verður örugglega að moka fyrir okkur reiðveginn á morgun enn eina ferðina. Ég fékk þessa mynd senda af hrossunum sem voru í rekstrinum hjá okkur s.l. laugardag. Ljósmyndarinn er Sóley Erna Sigurgeirsdóttir. |
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 21.jan 2012. Veðrið var alveg frábært í dag. Stillt og bjart og um 4 stiga frost. Við settum alla hesta í rekstur eftir hádegið svo í kvöld voru sveitt hross í öllum stíum. Þetta er fyrsti reksturinn hjá okkur eftir jól. Girðingarnar fóru flestar í kaf í snjó en þegar hlánaði tók upp mesta snjóinn og nú er gott reiðfæri og rekstrarhringurinn mjög góður. Hrossin sem tekin voru inn um jólin eru að komast í trimm svo það styttist í að ég fari að taka myndir af þeim. Fyrsta keppnin í Uppsveitardeildinni er næstkomandi laugardag og við byrjum á smalanum. Svo það er eins gott að fara að æfa eitthvað fyrir keppnina. |
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 19.jan.2012 Í fyrrakvöld var fræðslufundur á vegum Hrossaræktarsamtaka Suðurlands í Félagsheimili Sleipnis á Selfossi. Fundurinn var vel sóttur og fyrirlesari var Benedikt Líndal og umræðuefnið var reiðmennska. Benedikt er þekktur snillingur sem hefur gefið út kennsluefni um reiðmennsku. Hann flutti mjög fróðlegt erindi og talaði um alla þætti reiðmennsku bæði góða og slæma. Hann endaði á að ræða um A-úrslit á síðasta landsmóti. Hann var ekki sáttur við þessi úrslit og fannst of hart gengið að hestunum og þeir orðnir þreyttir og hættir að sýna sitt besta. Þetta er alveg umhugsunarvert og vonandi breytist þetta til batnaðar sem fyrst. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 10.jan.2012 Hér bættist við nýr starfskraftur eftir áramót. En þá byrjaði að vinna hjá okkur Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir. Hrafnhildur er úr Reykjavík og hefur nokkra reynslu af tamningum og hefur mikinn áhuga á hestum. Hér er nóg af hestum til að spreyta sig á og kærkomið að fá viðbótar starfskraft. Við bjóðum Hrafnhildi velkomna til starfa. Ekki er hægt að segja að veðrið hafi verið ákjósanlegt til útreiða í dag. Blindbylur mest allan daginn og við rétt náðum að gefa útiganginum áður en bylurinn skall á. Undir kvöld fór rafmagnið svo þetta ástand minnti helst á gamla daga blindhríð og rafmagnslaust. |
Hrafnhildur með hundinn sinn Rispu.
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 7.janúar 2012. Nú látum við staðar numið við að troða okkur út af veislumat og snúum okkur aftur að hrossunum. Eftir helgi byrjar venjuleg vinna við þjálfun og tamningar og allt sem hestahaldi fylgir. Búið er að járna flest hrossin sem komin eru inn og því bara hægt að byrja á þeim á mánudaginn. Ég fékk mér nýja myndavél stuttu fyrir jól og vonast því til að geta sett inn betri myndir á síðuna. Auðvitað kann ég ekkert á vélina ennþá en ég reyni að læra eitthvað á næstunni. Tók þessa mynd af jólasveinunum í Fellskoti rétt fyrir jól. |
Eva María og Fróði úti í garði í kuldanum.
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 5.janúar 2012 Æskulýðsnefnd Loga hefur á hverju ári staðið fyrir uppákomu sem þau kalla Álfareið í Reykholti. Og nú er álfareiðinni nýlokið en hún hófst með skrúðgöngu frá Aratungu kl.16.30 og síðan var gengið að Friðheimum þar sem sungin voru áramótalög. Álfakóngur og Álfadrottning eru á hestum en flestir aðrir bara fótgangandi en flugeldar eru auðvitað bannaðir. Í Friðheimum gæddu gestir sér á heitu kakó og kökum og síðan var spjallað og krakkarnir ærsluðust í snjónum. Þetta er skemmtilegur siður að kveðja jólin saman og fagna nýju ári í góðum félagsskap. |
Álfadrotting og álfakóngur nýkomin úr skrúðgöngunni
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 4.janúar 2012 Það er pínu skrítið að skrifa 2012, það tekur smá tíma að venjast því. En nú eru jólin og áramótin liðin og bara eftir þrettándinn. Það er nú alveg hægt að kvíða fyrir sprengjuveseninu sem fylgir þeim degi. Við verðum bara að vona að fólk hafi ekki efni á að kaupa þetta rakettudrasl. Reyndar er alveg merkilegt hvað fólk tímir að eyða peningum í rusl sem það kveikir svo bara í. Það eru ekki bara hestarnir sem eru hræddir við þessi læti. Hundarnir eru líka hræddir og ég heyrði í fréttunum að smáfulgar dyttu niður dauðir í hrönnum og helst haldið að þeir þyldu ekki lætin yfir áramótin. Jæja en hér er allt að færast í venjulegt horf . Byrjað að járna þau hross sem komin eru inn og svo hefst bara venjuleg þjálfun. Það er harður vetur núna og gefa verður útigangshrossum vel því þau hafa ekkert annað en þær rúllur sem þau fá. |
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 1. janúar 2012 Gleðilegt nýtt ár og bestu þakkir fyrir góðar stundir á liðnu ári. Megi nýja árið færa ykkur öllum gæfu og gleði. Í gær tókum við inn í viðbót um 20 hross til að forða þeim frá sprengjulátunum sem alltaf fylgir gamlaárskvöldi. Við settum inn yngstu hrossin og stóðhestatitti, svo auðveldara væri að fylgjast með þeim meðan mestu lætin gengu yfir. Auðvitað urðu mörg hross að vera úti, því ekki er hægt að koma öllu inn, en allt fór vel og öll hross á sínum stað í morgun. Ég tók þessa mynd um miðnættið í gærkvöldi og í fjarska sést birtan af gróðurhúsunum og sprengjunum í Reykholti. |
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 20.des.2011. Nú stendur yfir jólaundirbúningur í Fellskoti, eins og víðast hvar um þessar mundir og lítið verið í hrossastússi þessa dagana. Auðvitað verður alltaf að sinna hrossunum bæði úti og inni alla daga en við erum ekkert að ríða út núna. Síðasta laugardagskvöld kom fjölskyldan saman hér í bílskúrnum hjá mér til að búa til jólaskreytingar. Við Brynja fórum út í trjálund og sóttum greinar af ýmsum sortum og svo voru kassar með ýmsu jóladóti sóttir upp á hillur og síðan var hafist handa. Krakkarnir gáfu skreytingarmeisturum Blómavals og Garðheima ekkert eftir. Þetta var mjög gaman og ekki spurning að gera þetta að árlegri uppákomu. Svo er líka miklu skemmtilegra og líka hagkvæmara að búa til sínar eigin skreytingar en ekki kaup þetta úti í búð. Nokkrar myndir |
Guðrún Birna, Brynja og Katrín Rut búa til jólaskreytingar
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 11.des.2011. Frostið fór í 19 gráður á föstudagskvöldið hér í Tungunum. Desember hefur verið ansi kaldur hér um slóðir en svo hlýnaði talsvert í gær og í morgun var frostlaust. Við höfum verið að bíða eftir minna frosti til að taka folöldin undan merunum. Það er ekki gott að taka undan í miklu fosti en tvær hryssur eru á förum og nauðsynlegt að taka folöldin inn. Eftir spánni að dæma næstu daga þá er ekki spáð miklu frosti, svo við tókum folöldin inn í dag. Það var eins og mæðurnar tækju ekki eftir því, að folöldin vantaði í hópinn og þegar við fórum með rúllu til þeirra þá var engin að hneggja eða leita að sínu folaldi. Aftur á móti voru folöldin ekki eins ánægð, en það lagast fljótt. Hér er mynd af tveimur hestfolöldum sem komu inn í dag. Þessi blesótti heitir Greifi og er undan Aroni frá Strandarhöfði og Hugmynd frá Syðra-Skörðugili. Sá jarpi heitir Keilir og er undan Hring frá Fellskoti og Keilu frá Fellskoti. |
Tveir úr Tungunum
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 6.des.2011 Tíminn flýgur áfram og það verða komin jól áður en maður veit af. Eftir nokkra daga fyllist hesthúsið af hrossum sem þjálfa skal í vetur. Get varla beðið eftir því að taka þau inn. Ari frá Fellskoti er búinn að vera hjá Jakobi í Steinnesi síðan í lok október. Hann er á fimmta vetur undan Aroni frá Strandarhöfði og Adamsdótturinni Evu frá Skarði. Ari er fallegur foli með mjúkar og góðar hreyfingar. Spennandi að sjá hvernig Jakobi gengur í vetur með þann brúna. |
Ari frá Fellskoti knapi Jakob Sigurðsson
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 5.des.2011 Ég var ekki búinn að setja inn myndir af öllum frumtamningartrippunum. Auðvitað veit ég að þetta eru ekki góðar myndir og sýna bara trippi sem er rétt byrjað að halda á manni. En samt það er viss áfangi þegar þau koma inn í tamningu og þá hefst vinnuferli með tirppið sem sýnir strax hvernig það er í viðmóti og hvernig það bregst við þegar knapi er sestur á bak. Og það segir okkur heilmikið um geðslag og hæfileika þegar farið er í fyrsta útreiðartúr. Máni frá Fellskoti er á fjórða vetur undan Roða frá Múla og Evu frá Skarði. Hann er í tamningu í Steinnesi hjá Jakobi og er búinn að vera þar síðan 20.október. Máni er orðinn vel reiðfær og knapinn ( sem ég veit ekki hvað heitir) sýndi okkur hvað hann er þjáll og vel taminn. Hann fór vel hjá henni, tölti mest en brokkaði þó vel líka. |
Máni frá Fellskoti
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 2.des.2011 Dagurinn fór í að flytja hross milli girðinga og gefa út rúllur. Það tók langtum lengri tíma en til stóð en það voru líka nokkrar uppákomur sem töfðu okkur. Í einum hópnum var kominn óvæntur gestur. Ein hryssan sem kom hér í hagabeit í haust var köstuð brúnu merfolaldi. Það hefur að öllum líkindum fæðst í morgun því hrossin voru ekki búin að sjá það, en það var komið á spena þegar ég kom að þeim. Folaldið var hið sprækasta en það var frekar erfitt að koma því heim, bæði urðu hrossin alveg vitlaus þegar þau sáu folald í hópnum og svo var snjórinn full djúpur fyrir svona litlar lappir. Móðirin er rauð hryssa sem ég veit engin deili á, en mikið er hún ljúf og góð í öllum meðförum. Við settum mæðgurnar inn í stóra stíu íhesthúsinu og svo er bara að sjá hvernig gengur með litlu dömuna. Það er ekki mikil mjólk handa henni svona fyrst um sinn í þeirri rauðu en það getur nú alveg lagast á næstu dögum. Ég sótti nú samt mjólk beint úr fjósi á næsta bæ, ef á þyrfti að halda og fékk uppskrift hjá dýralækni hvernig ætti að blanda mjólk í nýfætt folald. Eigandinn var mjög hissa og vissi ekki til að hryssan væri fylfull enda var hún notuð til reiðar í allt sumar. |
Líney skoðar litla folaldið
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 29.nóv. 2011 Þáttur frá Fellskoti er einn af ungfolunum hér í Fellskoti og hann er líka hjá Guðmundi Björgvinssyni og er kominn í létt form. Hann er búinn að vera þar í fimm vikur eins og Flótti og nú styttist í að þeir fari í jólafrí. Þáttur er á fimmta vetur undan Hnokka frá Fellskoti og List frá Fellskoti. Hann er spennandi hestur og sýndi strax í fyrra góða takta. Nú er bara að sjá hvernig hann þróast eftir áramótin og fram á vorið. Gummi skellti sér á bak honum og fór í smá útreiðartúr. Ég tók myndir en það verður nú að segjast eins og er að myndavélagarmurinn minn er ekki að standa sig sem best þegar taka þarf myndir á ferð. |
Þáttur frá Fellskoti og Guðmundur Björgvinsson
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 25.nóv.2011 Við skelltum okkur í bíltúr og kíktum á stóðhestana sem eru í tamningu bæði hjá Guðmundi Björgvinssyni og Jakobi Sigurðssyni. Fyrst skoðuðum við folana á Ingólfshvoli og síðan fórum við í Steinsholt. Flótti frá Fellskoti er á fjórða vetur og er búinn að vera í 5 vikur hjá Gumma. Hann er jarpskjóttur stór og fallegur foli undan Hnokka frá Fellskoti og Lokkadís frá Bergstöðum. Hann var frekar styggur sem trippi svo við reiknuðum með að hann yrði svolítið kvikur í byrjun en hann er mjög rólegur og fer bara vel undir knapa. Set inn seinna fleiri myndir af Flótta. |
Flótti frá Fellskoti knapi Fanney Valsdóttir
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 23.nóv.2011 Nú er orðið svolítið vetrarlegt um að litast í Tungunum enda stutt til jóla. Aðeins hefur snjóað og í kvöld var komið smá frost. Ég skynja það alveg á hrossunum sem úti eru að þeim finnst alveg kominn tími til að fá heyrúllu eða bara komast inn á gjöf. Þau koma hlaupandi á móti mér þegar ég fer að athuga hvort allt sé í lagi í girðingunum og elta mig svo alveg út að hliði. Meiri dekurrófurnar þola ekki smá snjó. Ég tók þessa mynd milli élja bak við hesthús í kvöld. |
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 22.nóv. 2011 Næsta trippi á fjórða vetur sem Líney er að temja núna er Eir frá Fellskoti. Hann er geldingur undan Eik alsystur Hnotu og Borða frá Fellskoti. Eir er stór og fallegur foli. Hann er skrefmikill og fer vel af stað í tamningunni. Ég tók nokkrar myndir af honum í dag. Þær eru reyndar ekki góðar enda myndavélin mín frekar lélag. Nokkrar myndir af Eir. |
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 15.nóv.2011 Það er best að halda áfram að setja inn fréttir af frumtamningartrippunum. Hér er Líney að fara á bak á Kolu frá Fellskoti. Hún er á 4. vetur og er undan Keilu frá Fellskoti og Huga frá Hafsteinsstöðum. Keila er fínleg og létt hryssa sem verður gaman að sjá hvernig þróast með meiri tamningu. Hún er alþæg eins og trippin eru reyndar öll og hún líkist Keilu móður sinni í útliti. Það fer nú að styttast í að trippin fái frí . Þau er öll komin út á reiðveg nema Stubbur sem meiddi sig aðeins en er að verða góður svo hann nær vonandi hinum. |
Líney að fara á bak á Kolu frá Fellskoti
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 11.nóv.2011 Næsta frumtamningartrippi er Helena frá Fellskoti. Það verður að teljast dálítið kraftaverk að hún skuli vera komin af stað í tamningu. En Helena meiddist þegar hún var folald, brákaði bein í læri og var haldið inni í stíu í um tvö ár. Helena fór í myndatöku í september og dýralæknarnir gáfu grænt ljós á að byrja mætti að temja hana. Auðvitað verður farið rólega af stað og passað að ofgera henni ekki og láta mynda hana aftur í vor og sjá hvort allt sé í lagi. En Helena byrjar vel hún er sérstaklega næm og létt og heldur vel á knapanum. Ekki hægt að segja annað en hún sé mjög spennandi trippi. Helena er á fjórða vetri og er undan Álfi frá Selfossi og Hnotu frá Fellskoti. Nokkrar myndir af Helenu í reið |
Helena frá Fellskoti og Líney
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 10.nóv.2011 Hér kemur mynd af Líneyju á hryssu sem heitir Dröfn frá Fellskoti. Hún er á fjórða vetur og er undan Djásn frá Bergstöðum og Silfurgeisla frá Fellskoti. Báðir foreldarar hennar eru með 1.verðlaun svo hún er alls ekki ættlaus. Tamningin gengur vel og Dröfn er orðin vel reiðfær, þjál og auðveld og fer bara nokkuð vel strax. Kjörgangur er brokk þó töltið sé laust en eftir járninguna brokkar hún eingöngu. Hún er risastór og kjörkuð og verður mjög falleg hryssa þegar hún hefur lagt dálítið af því hún er alltof feit. Liturinn er mjög sérstakur og ég veit ekki hvort hún er móskjótt eða vindótt skjótt. |
Dröfn frá Fellskoti og Líney
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 8.nóv.2011 Nú er fekar rólegt í hestamennskunni hér á bæ. Eingöngu verið að frumtemja trippin sem eru á fjórða vetur og þar af leiðandi frekar fá hross inni núna. Það gengur mjög vel með trippin, þau temjast vel og eru öll þæg og auðveld. En ekki er hægt að henda hrossunum bara út í hagann og gleyma þeim þangað til þarf að nota þau. Nauðsynlegt er að fylgjast vel með þeim og ganga úr skugga um að allt sé í lagi daglega. Ég las í einhverju blaði um daginn að lífið hjá hestunum snúist um kynlíf og mat. Það á sannarlega við í tittagirðingunni hjá okkur en þar eru nokkrir folar sem vonandi verða frægir stóðhestar einhvern tímann. Þeir eru víða að og flestir háættaðir og þar er alltaf fjör. Ég tók þessa mynd þegar ég leit til þeirra í síðustu viku. Þeir eru á túnunum og þau eru enn nokkuð græn eins og sést á myndinni. |
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 5,nóv.2011 Hringur var tekinn úr stóðhestagirðingu á Brekku um mánaðarmótin ágúst september. Síðan þá hefur hann verið hér heima í túninu með einni hryssu. Hann fékk alveg nóg af sambúðinni með henni um síðustu helgi og kom bara heim að hesthúsi og stóð þar og beið bara eftir að komast inn. Hann skildi dömuna bara eftir og sagði ekki einu sinni takk fyrir samveruna. |
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 2,nóv.2011 Það er ekki hægt að segja að myndirnar sem ég hef sett hér inn að undanförnu séu í fallegum litum. Allir litir eru svo daufir núna í umhverfinu og ég verð bara þunglynd ef ég horfi á svona litlausar myndir. Svo núna set ég inn sumarmynd til að lífga upp á þessa daufu liti og fyrir valinu varð þessi mynd sem tekin var 28.ágúst þegar við vorum að ljúka við að rúlla síðustu rúllunum í seinna slætti. Flottir litir ekki satt, þó myndin sé tekin undir kvöld. |
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 2.nóv.2011 Þessi fallega hryssa vann 1. sæti á folaldasýningunni hjá Hrossaræktarfélagi Biskupstungna í Reiðhöllinni á Flúðum s.l.laugardag. Hún heitir Hrönn frá Bergstöðum og móðir hennar er Rán frá Miðsitju en hún er undan Klið frá Miðsitju og Grímu frá Bjarnastöðum. Faðirinn er Hringur frá Fellskoti. Eigendur að þessu folaldi eru Jóna Sigríður Guðmundsdóttir Vatnsleysu og Haukur Daðason Bergholti. Myndin er tekin fyrir nokkrum vikum. |
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 29.okt.2011 Folaldasýning Hrossaræktarfélags Biskupstungna fór fram í gær í Reiðhöllinni á Flúðum. Þáttaka var mjög góð eða 25 folöld. Dómarar voru Gunnar Arnarson og Eyvindur Hrannar Gunnarsson. Folöldin voru auðvitað misjöfn en mörg mjög góð. Við fórum með eina hryssu Frostrós undan Hugmynd frá Fellskoti sem er undan Hnotu frá Fellskoti og Kormáki frá Flugumýri. Faðir Frostrósar er Huginn frá Haga sem hefur fyrir löngu sannað sig með afkvæmum sínum. Hestfolaldið sem við fórum með heitir Keilir og er undan Keilu frá Fellskoti sem er undan Þorra frá Þúfu og Evu frá Skarði. En faðir Keilis er Hringur frá Fellskoti sonur Hróðs frá Refstöðum og Hnotu frá Fellskoti. Svo bæði folöldin eru út af Hnotu. Okkar folöld stóðu sig mjög vel og lenntu bæði í öðru sæti í sínum flokki. Við erum mjög ánægð með folöldin undan Hring en folaldið sem sigraði hryssuflokki er einmitt undan honum.Hérna eru öll úrslitin http://eidfaxi.is/frettir/2011/10/folaldasyning-fludum-i-dag |
Efstu hestfolöldin Keilir Kóngur og Hrannar.
Myndin er tekin af vef eiðfaxa.is |
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 20.okt.2011 Þessi hópur stillti sér upp þegar við vorum á ferðinni á reiðveginum í vikunni. Þau eru í fríi fram að áramótum og hafa það gott enda veðrið fínt ennþá. Eftir áramót tekur alvaran við aftur og þau fara þá í áframhaldandi tamningu og þjálfun. Við finnum það vel á hrossunum sem við erum með í söluþjálfun hvað hrossunum er nauðsynlegt að fá frí eftir að hafa verið lengi í þjálfun. Það kemur einhver leiði í þau og þau verða þyngri á sér, jafnvel þó þau séu inni. Langbest að nota haustið til frumtamninga því þau hross eru að koma úr fríi. |
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 16. okt.2011 Í gær sóttum við fjögurra vetra folann Þátt frá Fellskoti í Skálholt en þar er hann búinn að vera í hryssum í sumar. Hann hefur fitnað vel enda er hann búinn að vera í góðu grasi í stærstu stóðhestagirðingu landsins. Þáttur er grannholda að eðlisfari svo við erum mjög ánægð með hvað hann lítur vel út. Þáttur var taminn síðast liðinn vetur af Sigvalda og reyndist mjög álitlegur foli. Hann er undan Hnokka frá Fellskoti og List frá Fellskoti sem er nú í eigu Þórs Jósteinssonar á Skriðu. |
Þáttur nýkominn af kerrunni í gær.
|
| 14.okt.2011 Stóðhestarnir eru að týnast heim einn af öðrum úr girðingum. Í dag sóttum við Aronssoninn Ara frá Fellskoti en hann hefur verið í nokkrum hryssum í girðingu á Hjarðarlandi í sumar. Ari er 4 vetra og var talsvert taminn s.l. vetur. Hann er í fínu standi alveg passlega feitur og fallegur. Ari er undan Adamsdótturinni Evu frá Skarði en hún hefur gefið okkur falleg og góð hross. Ari fór í byggingadóm í vor og fékk þar töluna 8.11 þar af 8,5 fyrir höfuð, bak og lend, samræmi og prúðleika. |
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 13.okt.2011. Enn eru hestamót þó komið sé fram í október og eitt slíkt var í Osló s.l. mánudag. Það kallast Oslo horse show og er glæsileg hestasýning og keppni. Jóhann Skúlason vann töltið á Hnokka frá Fellskoti með 9.28 í einkunn. Anne-Stine Haugen og Muni frá Kvistum voru í öðru sæti með 8,83 og í þriðja sæti var Stian Pedersen á Globus frá Jakobgården með 7,95. Gaman hefði verið að vera í stúkunni og kíkja á Hnokka kallinn, ég hef ekki séð hann í reið síðan hann fór til Danmerkur. Öll fréttin er hér http://www.hestafrettir.is/ |
Jóhann og Hnokki Myndin er af http://www.hestafrettir.is/
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 7.okt.2011. Ég tók nokkrar myndir í dag. Haustlitirnir eru svo fallegir og trén marglit t.d. eru aspirnar alveg gular. Laufið fauk reyndar talsvert af um síðustu helgi. Þá var bæði rok og rigning og laufið hrúgaðist inn í reiðskemmuna hjá okkur. Nágrannar okkar voru í heyskap í gær og margir bændur eru að slá korn þessa daga. Held að það sé frekar seint, en sennilega hefur það sprottið hægt enda mjög kalt sl.vor. |
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 7.okt.2011 Frumtamningar eru í fullum gangi hér eins og annars staðar. Við erum bara nokkuð ánægð með trippin þau líta bara vel út og spennandi að sjá hvernig þau þróast næstu vikurnar. Við erum að byrja á 8 trippum, tveir ógeltir folar, annar undan Roða frá Múla og hinn undan Hnokka frá Fellskoti. Svo eru 3 hryssur undan Álfi frá Selfossi, Huga frá Hafsteinsstöðum og Silfurgeisla frá Fellskoti. Síðan eru 3 geldingar undan Stála frá Kjarri, Borða frá Fellskoti og Huga frá Hafsteinsstöðum. Mættu vera fleiri hryssur en svona er þetta bara það hafa komið allt of mörg hestfolöld hjá okkur undanfarin ár. Fengum reyndar fleiri hryssur en hesta vorið 2009 en við byrjum einmitt á þeim næsta haust. |
Líney með Roða sem er undan Perlu frá Bringu og Huga
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 30.sept.2011 Nú ganga haustlægirnar yfir eins og vant er á þessum árstíma. Við Líney verðum gegndrepa flesta daga en það er ekkert kalt í veðri svo þá er bara að skipta um föt og halda áfram að ríða út. Folöldin eru orðin risastór eins og sést hérna á myndinni en þetta er hestfolald undan Evu frá Skarði og Hring frá Fellskoti. Ég hef ekki verið dugleg að taka myndir af folöldunum í sumar, Einhvern veginn tókst það ekki, þar sem þau voru út og suður með mæðrum sínum hjá stóðhestum. Næ örugglega myndum af þeim þegar þau koma heim úr Arnarholti. |
Eva frá Skarði og folald
undan Hring |
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 22. sept.2011 Ný hross eru komin inn á sölusíðuna hjá okkur. En dauft hefur verið yfir hrossasölu það sem af er árinu víðast hvar, en eitthvað er það að glæðast. Alla vega er aðeins farið að spyrja um hross til sölu og sölusýningar eru farnar af stað í Hestheimum og sjálfsagt víðar. Ég er að basla við að setja inn myndir og videó af söluhrossunum en nettengingin hjá mér hefur verið sérstaklega léleg í haust og allavega fer heilt kvöld i að reyna að koma inn einni frétt. Viðgerðarmaður var hér í gær frá Símanum og ég vona bara að þetta lagist sem fyrst. |
Þyrnirós frá Fellskoti og Líney
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 12.sept.2011. Þá er lokið gröfuvinnunni á bak við hesthúsið. Það voru B.D. vélar sem sáu um verkið og þegar mest var voru 3 gröfur og vörubílar að vinna á grjótinu. Þó mikið sé búið að moka til af grjóti þá er enn eftir fallegt stuðlabergs fjall sem hækkar upp hlíðina á bak við. Næsta skref er að keyra möl yfir allt svæðið og byggja svo aftur upp gerðin og ganga frá girðingum. Það verður mjög gott pláss þarna og þessi breyting auðveldar alla aðkomu að bæði húsum og gerðum. Nokkrar myndir sem teknar voru meðan á framkvæmdum stóð. |
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 4. sept. 2011 Undanfarna daga hafa verið tvær gröfur bak við hesthúsið hjá okkur að grafa grunn fyrir væntanlegri reiðskemmu. Ekki er hægt að segja að þetta sé auðvelt verk þar sem bæði þurfti að fella súrheysturninn og svo eru bara klettar þarna á bak við svo verkið gengur frekar hægt fyrir sig. Ekki er meiningin að fara af stað með bygginguna strax heldur gera grunninn undir reiðskemmuna og svæðið í kring klárt núna í haust. Rífa þurfti gerðin svo gera þarf ný gerði meðal annars. Ekki er hægt að segja að það sé auðvelt að temja á meðan á þessu stendur. Við verðum að teyma öll hross inn og út um hesthúsið svo það er frekar seinlegt með mörg hross. En sennilega fara lætin meira í taugarnar á okkur en hestunum. Þeir virðast vera fljótir að venjast hávaðanum og kippa sér ekkert upp við þó verið sé að rippa klöppina niður. |
Það var seigt í gamla turninum en hann féll að lokum.
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 25.ágúst.2011 Nú er byrjað að kólna og sumarið farið að styttast í annnan endann. Gæðingamót Smára var haldið um síðustu helgi. Líney, Katrín Rut og ég tókum þátt í opna töltinu og gekk mjög vel. Líney keppti á Brá frá Fellskoti og Viðju frá Fellskoti en ég á Birtu frá Fellskoti og Katrín Rut á Blika frá Leysingjastöðum. Við riðum allar A-úrslit og Líney var með báðar hryssurnar í A-úrslitum og þurfti að velja um hvora hún myndi ríða í úrslitunum og valdi hún Brá.Katrín kom upp úr B-úrslitum og stóð sig verulega vel á þessu móti en hún var þar að keppa við fullorðna því það var enginn unglingaflokkur. Eftir hraðabreytingarnar var hún komin í 3-4 sæti en svo tók Bliki upp á því að prjóna og snúa við þegar hraðatöltið hófst en það er einmitt hans besta gangtegund en svona getur bara gerst þetta eru lifandi dýr ekki satt. Öll úrslit á http://smari1945.123.is/ Hér eru nokkrar myndir sem Sigurlína Kristinsdóttir tók af okkur í keppninni. |
Úrslit í opnu tölti á Flúðum
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 7.ágúst 2011 Það er ekki á hverjum degi sem hestur úr okkar ræktun verður heimsmeistari. Hnokki frá Fellskoti varð heimsmeistari í tölti á HM í Austurríki í dag. Knapi var Jóhann Skúlason en hann hefur 4 sinnum náð þessum titli áður. Auðvitað erum við mjög stolt af Hnokka og gaman að hann skuli ná þessum árangri. Ekki spillir að topp knapi er með hestinn, án hans hefði hann ekki náð svona langt. Það voru reyndar tveir hestar úr Tungunum sem urðu heimsmeistarar á þessu móti en Hekla Katarina og Gautrekur frá Torfstöðum urðu heimsmeistarar ungmenna. Sá þessa flottu mynd af Hnokka og Jóhanni á Hestafréttum. Sjá fréttina hér: http://www.hestafrettir.is/Frettir/11329/ |
Hnokki frá Fellskoti og Jóhann Skúlason |
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 6.ágúst 2011 Það er ekki nauðsynlegt að fara til útlanda til að skella sér í stuttbuxurnar. Í dag var æðislegt veður sól og hiti og krakkarnir voru léttklædd í leik í garðinum. Það spáir sól næstu daga og Kiddi setti sláttuvélina við og skellti sér í heyskapinn aftur. Líney og Bent eru á Heimsmeistaramótinu í Austurríki en við erum heima og fylgjumst spennt með hvernig Íslenska liðinu gengur í keppninni. Við fáum reglulega fréttir frá þeim og svo sjáum við þáttinn í sjónvarpinu á kvöldin. Morgundagurinn verður mjög spennandi. |
Eva María og Fróði leika sér í góða veðrinu í dag.
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 6.ágúst 2011. Það er ekki nema von að þær brosi báðar Viðja og Líney á myndinni, því þessi mynd var tekin þegar þær unnu Töltbikar Loga á Hrísholti um síðustu helgi. Líney heldur einmitt á bikarnum en Viðja vill nú eitthvað leggja til málanna líka. Enn á ég eftir að setja inn nokkrar myndir sem Sigurlína sendi mér af verðlaunaafhendingum. Það er hægt að skoða þær hér |
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------
| 3.ágúst 2011 Katrín Rut stóð sig mjög vel á Hrísholtsmótinu og keppti á Blika frá Leysingjastöðum II, í unglingaflokki. Hún lenti í 3 sæti með einkunina 8.34. Hún keppti líka í tölti unglinga á Brá frá Fellskoti. Þær náðu að ég held í 4 sæti inn í A-úrslit og Katrín reið upp í annað sæti í úrslitunum og hlaut í einkunn 6,56. Katrín Rut hlaut töltbikar Loga fyrir þennan árangur. Nokkrar myndir af Katrínu Rut á Blika og Brá. |
Katrín Rut á Brá frá Fellskoti
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 3.ágúst 2011. Kristján Hjalti keppti líka á Hrísholtsmótinu. Hann keppti á Prins frá Fellskoti í tölti en náði ekki inn í úrslit þar. Svo keppti hann líka á Prins í unglingaflokki og var þar fimmti inn í A-úrslit og hélt því sæti í úrslitum. Prins var eitthvað að stríða honum og vildi ekki brokka í úrslitunum en Kristjáni tókst þó alla vega að fá eitthvað brokk. Prins á alveg til að vilja ekki brokka þegar fleiri eru inn á vellinum í einu og Kristján var að prófa hestinn fyrst, rétt fyrir keppni, svo ég tel hann bara hafa náð góðum árangri. Myndir af Kristjáni Hjalta og Prins í Hrísholti. |
Kristján Hjalti á Prins frá Fellskoti
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 2.ágúst 2011 Ég hef ekki tekið þátt í Hrísholtsmóti í mörg ár en ákvað að skella mér með Birtu í B-flokkinn og Spes í A-flokkinn. Birta fékk góða einkunn í forkeppni og var í öðru sæti inn í A-úrslit og endaði í 3 sæti með 8.36 í einkunn. Spes var mjög góð í forkeppninni og stóð efst inn í A-úrslit með 8,38 en í úrslitunum gekk okkur ekki eins vel. Í byrjun missti hún skeifu og braut nokkuð hófinn svo hún var járnuð með talsvert minni skeifu. Ekki veit ég hvort það hafði einhver áhrif en allavega skeiðaði hún ekki hjá mér svo við enduðum í 5 sæti. Ég var samt mjög ánægð með hana og veit að hún á mikið inni. Þó furðulegt megi teljast var ég samt kosin knapi mótsins og fékk flottan bikar. Hér eru nokkrar myndir af Birtu og Spes í Hrísholti. Myndirnar tók Sigurlína Kristinsdóttir. Verð að fara að sofa set inn meira á morgun. |
María og Spes frá Fellskoti
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 2. ágúst 2011 Jæja ég talaði um að setja inn meira efni um Logamótið. Líney stóð sig mjög vel á mótinu og keppti á Glampadótturinni Viðju frá Fellskoti í 1 flokki í tölti. Hún var efst inn í A-úrslit í forkeppni og endaði í 2-3 sæti eftir A-úrslitin á sunnudeginum ásamt Ingimar Baldvinssyn með einkunina 6,76. Líney mætti einnig með Lokk frá Fellskoti í A-flokk en náði ekki inn í úrslit en gekk samt bara vel og reyndist þetta fín æfing fyrir Lokk og gengur bara betur næst. Einnig tók hún þátt í B-flokki á Rúbín frá Fellskoti og Hljómi frá Fellskoti og er það í fyrsta skipti sem þeir mæta í keppni báðir. Hljómur fékk góða einkunn og fór beint inn í A-úrslit í 4 sæti og hélt því sæti í úrslitunum með einkunina 8,26. Hér eru myndir af Líneyju á Viðju og Hljómi í úrslitunum Allar þessar myndir tók Sigurlína Kristinsdóttir. |
Líney og Hljómur frá Fellskoti
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 1.ágúst 2011 Hestamót Loga var haldið um helgina. Við skráðum 10 hross í keppnina en fórum með 9 af þeim í Hrísholt (afskráðum einn hest) á laugardaginn og 7 af þeim náðu inn í úrslit. Við vorum bara nokkuð sátt með árangurinn sérstaklega þar sem sum þeirra voru að mæta í keppni í fyrsta sinn. Úrslitin gengu þokkalega og ekki spurning að hrossin höfðu gott af þessu. Mótið var óvenju langdregið og heyrðist illa í hátölurum og tafði það örugglega eitthvað fyrir því að úrslitin gengu greitt. En það rættist úr veðrinu á sunnudeginum eftir rigninga dembur á laugardeginum. Öll úrslit eru birt hér http://hestamannafelagidlogi.bloggar.is/ Set inn á morgun meira um mótið. |
Sigurvegarar í tölti 1 flokki
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 26.júlí 2011. Dagurinn fór að mestu leiti í að hreinsa grjót úr reiðveginum. Hér hafa staðið yfir vegaframkvæmdir frá því í haust, þar sem verið var að breikka veginn frá vegamótum út í Tunguhverfi og niður í Reykholt. Auðvitað fóru reiðvegirnir ekki vel út úr þessu skarki en nú er þessi kafli loksins búinn og bundið slitlag var sett á fyrir síðustu helgi, svo þá var hægt að fara að hefla reiðveginn og hreinsa grjót og valta síðan. Við vorum ekki ein sem stóðum í þessu heldur mætti hestafólk úr Reykholti, enda gekk þetta mjög vel og sennilega er verkið bara hálfnað. Stefnum að því að klára þetta næstu daga. Okkar besta reiðleið var gamli malarvegurinn yfir Pollengið en efir að nýja brúin hjá Hvítá var opnuð, var lagður nýr vegur þar yfir og búið að malbika hann. Reyndar var lagður um leið nýr reiðvegur en hann er mjög þungur og nánast ófær nema á feti. |
Nýja brúin yfir Hvítá |
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 21, júlí 2011. Tölvan mín hefur verið að stríða mér undanfarið og var ástandið orðið það slæmt að nokkra tíma tók að reyna að setja efni inn á síðuna. Það skýrir auðvitað hvers vegna ekki hafa komið inn reglulega einhverjar fréttir hér á síðuna. En í gær stormaði eg í bæinn og keypti risastóran harðan disk og nú er ég búin að létta það mikið á minni gömlu tölvu (sem var alveg full )að hún lætur aftur að stjórn og nú er spennandi að vita hvort þessi frétt nær að komast inn á vefinn eða hvort ég horfi á stundaglasið tímunum saman og gefst svo upp að lokum og bara kaupi nýja tölvu. Við skelltum öllum hrossunum í rekstur í dag og fórum tvo hringi með hvern hóp. Bara snilld að brjóta upp þessa venjulega þjálfun og láta þau hlaupa hressilega annað slagið. |
Sól og blíða seinni partinn í dag.
|
| 12.júlí 2011 Hér gengur allt sinn vanagang. Heyskapur byrjaður og við temjum og þjálfum hross allan daginn. Ekki hægt að segja að hér vanti verkefni enda alltaf nóg að gera á sveitabæ. Spretta hefur verið mjög léleg en nú er loksins sumarlegt um að litast útjörð er orðin græn og við erum hætt að gefa hrossum rúllur í haganum. Við vorum i viku á Landsmóti og sátum í bílnum fyrstu dagana vegna kulda og horfðum á kynbótahross. Sem betur fer hlýnaði og fólkið settist í brekkurnar. Landsmótið fór mjög vel fram og hrossin voru verulega jöfn og góð. Tvö hross standa uppúr bæði jörp að lit Spuni frá Vesturkoti og Diva frá Álfhólum. |
Aron frá Strandarhöfði með afkvæmum á LM
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 27. júní 2011. Firmakeppni Loga var haldin 18.júní s.l. í Hrísholti. Vinnufólkið hér á bæ skellti sér í keppnina og gekk bara mjög vel. Katrín Rut var efst í unglingaflokki á Viðju frá Fellskoti, Kristján Hjalti keppti á Lokk og gekk vel þó hann færi ekki í úrslit. Freydís Halla hefur verið hér í verknámi og hún keppti á Djörfungu frá Höskuldsstöðum og gekk mjög vel og var í þriðja sæti í flokki minna vanir og Eva María keppti á Brá frá Fellskoti og var í þriðja sæti í barnaflokki. Það var gaman að sjá krakkana spreyta sig í keppni og ekki hægt að segja ennað en þeim hafi öllum gengið vel. Fleiri myndir af Firmakeppninni. |
Katrín Rut á Viðju frá Fellskoti
Ljósm Sigurlína Kristinsd. |
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 22.júní 2011 Jæja loksins hef ég tíma til að setja eitthvað hér inn. Stóðhestahaldinu er lokið og hestarnir farnir í girðingar. Nú er bara að bíða og vona að sem flestar hryssurnar sem komu undir þá séu fylfullar, auðvitað helst allar. Sum folöldin sem komu hér í heimsókn í vor fengu niðurgang og urðu nokkur mjög veik. Ekki hefur fengist svar við því hvað var hér á ferðinni en sennilega var þetta smitandi pest sem kom með folaldi því ekkert okkar folalda hefur veikst. Eitthvað bar á þessu á víðar í vor og síðast liðið vor. Aðeins er að hlýna og grænka þó enn þurfi að gefa hey í flestum hólfum. Það er reyndar með ólíkindum hvað sumarið kemur seint og man ég ekki eftir svona lítilli sprettu um þetta leiti. |
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 25.maí 2011. Þá er að kynna síðasta stóðhestinn sem verður í húsnotkun í Fellskoti þetta vorið, og það er Huginn frá Haga. Hann hefur verið hjá okkur oft áður og alltaf fengið flestar hryssur til sín af þeim hestum sem hér hafa verið. Hann er eins og Sveinn löngu búinn að sanna sig með afkvæmum sínum. Huginn er með mjög háan kynbótadóm hann fékk 7,84 fyrir byggingu en 9.05 fyrir hæfileika og aðaleinkunn 8,57. Hann fékk 10 fyrir vilja og geðslag og níu fyrir tölt, skeið, fegurð í reið og hægt tölt. Huginn verður hér fram að fyrra gangmáli. Nánari upplýsingar í síma 8999612 og 8998616. |
Huginn frá Haga
Knapi Sigurbjörn Bárðarson |
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 23,maí 2011. Sveinn Hervar er kominn og farinn að sinna hryssum hér. Hann kom aðeins seinna vegna þess að það þurfti að ljúka að halda nokkrum hryssum undir hann í Ölfusinu fyrst. Svein Hervar þarf varla að kynna því hann er löngu búinn að sanna sig með góðum afkvæmum. Hann er líka eldri og reyndari en þeir stóðhestar sem áður voru taldir. Sveinn Hervar er undan Orra frá Þúfu og Rák frá Þúfu. Sveinn er með háan kynbótadóm þó hann sé klárhestur. Hann er með 8,06 fyrir byggingu og 8,38 fyrir hæfileika þar af 6 níur. Í aðaleinkunn hefur hann hlotið 8,25. Sveinn verður hér í húsnotkun fram í miðjan júní. Eftir það verður hann hjá Hrossaræktarfélagi Hrunamanna. Sjá nánar http://horseexport.is/ |
Sveinn Hervar. Knapi Lena Zelenski
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 23. maí 2011 Ekki er hægt að segja að það sé glæsilegt um að litast. Vorið sem virtist vera allveg að koma fyrir rúmri viku er horfið og nú er bara rok og kuldi. Hér var dálítið öskufall í gær og síðastliðna nótt. Ég veit að við þurfum ekki að kvarta miðað við þá bændur sem búa nær gosstöðvunum en þar hlýtur að vera ömurlegt um að litast. Það var órói í hestunum meðan á öskufallinu stóð og greinilegt að þetta fer ekki vel í hrossin jafnvel þó í litlu magni sé. Kristinn setti hey hjá öllum hrossum og skipti um vatn hjá þeim sem hafa ekki rennandi vatn. Vonandi stendur þetta gos ekki lengi. |
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 21. maí 2011 Jæja enn einn stóðhesturinn. Þessi heitir Þáttur frá Fellskoti og er 4 vetra. Sigvaldi hefur verið að temja hann í vetur og gengið vel. Þáttur er undan Hnokka frá Fellskoti og List frá Fellskoti og er hann hennar fyrsta afkvæmi. List er gullfalleg og góð hryssa undan Sokkadís frá Bergstöðum og Galdri frá Sauðárkróki og er nú í eigu Þórs Jósteinssonar á Skriðu. Þáttur er efnilegur og flinkur alhliða hestur. Hann er hágengur og töltið er eðlisgott. Þáttur verður í girðingu í Fellskoti í sumar en annars er hann líka laus til útleigu. Upplýsingar í síma 8999612 eða 8998616 |
Þáttur frá Fellskoti knapi
Sigvaldi Lárus Guðmundss. |
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 21. maí 2011 Ekki veit ég hvort það er tilviljun, en mér finnst folöldin fæðast helst þegar versnar í veðri. Núna kólnaði og þá fæddust strax 2 folöld sem við vorum farin að bíða eftir. Eik kastaði í gærmorgun brúnni hryssu undan Sveini Hervari. Þær skulfu svo mikið að við stungum þeim inn í folaldahúsið svo þær gætu hitað sér aðeins meðan folaldið þornaði. Heldur er að lyftast á okkur brúnin, þar sem komnar eru 3 hryssur en 4 hestar. Þetta leit ekki svo vel út fyrir stuttu og stefndi allt í að við fengum eingöngu hestfolöld. Ég tók mynd af Eik og folaldinu í norðangarranum í gærmorgun þar sem þær snúa rassi í vindinn og skjálfa báðar. Ekki er hægt að segja að viðri vel til að mynda þessi litlu grey. Ég stefni á myndatöku í sól og sumaril seinna. |
Eik með nýkastaða dóttur.
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 20. maí 2011 Það kemur ekki oft fyrir að það þurfi að hjálpa hryssu að kasta, en það gekk ekki vel hjá einni af okkar hryssum í fyrradag og þurfti hún aðstoð við að koma folaldinu í heiminn. Hausinn var kominn og sá í annan framfótinn en hinn var alveg týndur. Með smá aðstoð tókst að laga þetta og fæðingin gekk svo vel. Hryssan heitir Lögg frá Fellskoti og átti hún bleikálótta hryssu undan Hljómi frá Fellskoti. Báðar voru dálítið dasaðar en núna er allt í lagi með þær. |
Lögg og bleikálótta hryssan |
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 19.maí 2011 Ég ætla að halda áfram að kynna stóðhestana sem eru hér til afnota í vor. Gaumur frá Auðsholtshjáleigu er mættur og nú þegar komnar hryssur til hans. Gaumur er mjög hátt dæmdur alhliða stóðhestur með 8.13 fyrir byggingu og 9.05 fyrir hæfileika. Aðaleinkun 8.69. Hann er með 9,5 fyrir tölt og vilja og geðslag. 9 fyrir brokk og fegurð í reið. Gaumur er undan Orra frá Þúfu og Hildi frá Garðabæ og hægt er að panta undir hann í síma 8999612 eða 8998616. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Gaums http://horseexport.is/ |
og Þórður Þorgeirsson / Arno Grimm |
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 15.maí 2011 Hér er mynd af 4.v. stóðhesti sem Sigvaldi hefur verið að temja í vetur. Hann heitir Ari frá Fellskoti og er undan Aroni frá Strandarhöfði og Evu frá Skarði. Eva er undan Adam frá Meðalfelli og hefur gefið okkur mjög góð hross. Nokkur afkvæma hennar eru með 1.v. Ari er stór og gullfallegur hestur með mjúkar og fallegar hreyfingar. Hann fer í dóm í vor ef allt gengur eftir. Ari verður í girðingu í Biskupstungum og hægt að panta undir hann í síma 8999612 eða 8998616. Nokkrar myndir af Ara. |
Ari frá Fellskoti. Knapi Sigvaldi Lárus Guðmundsson
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 12. maí 2011. Ég var að skrá Hring frá Fellskoti inn á stóðhestavefinn http://stodhestar.com. Þetta er sniðugur vefur þar sem hægt er að skrá allt það helsta um stóðhestinn. Einnig er hægt að setja inn myndir og myndbönd. Þessi vefur gæti fækkað stóðhestablöðunum og jafnvel komið í stað þeirra, alla vega fyrir þá sem nota tölvu. Hringur verður í girðingu í Biskupstungum í sumar en óvíst er með húsnotkun vegna þess að stefnt er með hann í dóm í vor. Hægt er að panta undir Hring í símum 8999612 / 8998616. Þeir sem voru á biðlista s.l. sumar og ætla að halda undir Hring eru beðnir að staðfesta pantanir. |
Hringur frá Fellskoti Knapi
Helga Una Björnsdóttir Ljósm Sissel Tveten. |
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 8. maí 2011 Hnota var köstuð í morgun þegar ég kom á fætur. Hún kom með bleikálóttan hest undan Sveini Hervari.og nú er nóg komið af hestfolöldum. Þetta er fimmta folaldið sem fæðist í vor og bara ein hryssa fædd enn sem komið er. En folaldið er vel vaxið fótahátt og frítt en það er bogið um kjúku á vinstra framfæti og gengur þar af leiðandi halt til að byrja með. Vonandi lagast það af sjálfu sér. |
Folaldið undan Hnotu
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 8.maí 2011 Hugmynd frá Syðra Skörðugili kastaði á föstudaginn 6.maí. Aldrei þessu vant þá kom folaldið um miðjan dag. Yfirleitt kasta hryssurnar á nóttunni eða undir morgun. Folaldið er rauðblesóttur hestur undan Aroni frá Strandarhöfði. Hann er fínlegur og fallegur og ég er mjög ánægð með litinn. Hér hafa ekki fæðst mörg rauðblesótt folöld um dagana. |
Hugmynd með sitt folald
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 8.maí 2011 Ég hef ekki haft tíma til að setja efni inn á síðuna. En folöldin koma eitt af öðru og Eva kastaði 4. maí. rauðjörpu stjörnóttu hestfolaldi undan Hring frá Fellskoti. Folaldið er mjög fallegt og líkist föðurnum alla vega á litinn. Það er mikill munur hjá þeim folöldum sem fæðast núna bara sól og blíða og óþarfi að taka þau inn eins og þau fyrstu sem fæddust í snjónum. |
Eva og folaldið
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 8.maí 2011 Kappi frá Kommu er mættur í Fellskot og tilbúinn að taka á móti hryssum í húsnotkun. Kappi er hátt dæmdur 1.v.stóðhestur með 8.51 í aðaleinkun jafn fyrir byggingu og hæfileika. Hann er með 9,5 fyrir samræmi, tölt, stökk og fegurð í reið og 9 fyrir háls/herðar og bóga, bak og lend, brokk, vilja og geðslag og hægt stökk. Engar smá einkunnir hjá ungum hesti. Kappi er undan Þristi frá Feti og Kjarnorku frá Kommu. Nú þegar eru komnar mjög margar pantanir undir Kappa en eitthvað er samt hægt að bæta við. Greiða þarf staðfestingargjald kr. 25.000.- þegar komið er með hryssu eða þegar hún er sótt Nánari upplýsingar um Kappa er á heimasíðu hans http://www.husavikurhestar.is/kappi.htm |
Ég fann þessa flottu mynd af Kappa á heimasíðu hans
|
| 1. maí 2011. Ég sat við tölvuna í gærkvöldi fram á nótt og reyndi að setja inn á síðuna en það var bara allt stopp. Núna get ég sett inn fréttir. Lokamótið í Uppsveitardeild æskunnar var í Flúðahöllinni í gærdag. Keppt var í tölti og fljúgandi skeiði. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og ekki spurning að þessi keppni Æskunnar er komin til að vera. Magrir krakkannna eru að ríða prógram í fyrsta skipti í vetur og næsta vetur koma þau betur undirbúin. Ég spái því að það verði hörkukeppni hjá Uppsveitardeild Æskunnar á næsta ári. Í vetur hafa þau skipst á að vera í efstu sætum sem er bara skemmtilegt og gott fyrir þau að sjá að þetta er ekki sjálfgefið. Það liggur mikil vinna á bak við svona keppni. Og mig grunar að það sé viss léttir að þessu skuli lokið í bili enda kominn sauðburður og önnur vorverk á næsta leiti. Eva María keppti á Brá í töltinu og gekk ágætlega var í B-úrslitum í 6 sæti en keppti ekki í skeiði. Katrín Rut keppti á Prins og náði ekki í úrslit þar en gekk vel í skeiðinu á Smjörva og lenti í 5 sæti. Það er ekki spurning að Katrín á eftir að taka aftur þátt í skeiði. Hún hefur nú þegar náð að leggja alla spretti án þess að mistakast. Öll úrslit eru hér http://hestamannafelagidlogi.bloggar.is/ |
Kátir keppendur Loga
Elísabet og Eva María
|
| 30.apríl 2011. Síðasta mótið í Uppsveitarkeppninni var haldið í Flúðahöllinni í gærkvöldi. Keppt var í tölti og fljúgandi skeiði. Hestakostur var mjög góður og er greinilegt að það er mikil framför frá árinu áður. Allir hestarnir lágu alla vega einn sprett og voru margir með góðan tíma. Eins voru jöfn og góð hross í töltkeppninni. Í heildina hafa mótin tekist vel og verið fjölsótt af áhorfendum. Keppnin í gærkvöldi var æsispennandi enda munaði litlu í einstaklingskeppninni á milli þeirra sem voru efstir. Töltið sigraði Guðmann Unnsteinsson á Breytingu frá Haga og Líney varð önnur á Viðju frá Fellskoti og þriðja var Hólmfríður Kristjánsdóttir á Gulltoppi frá Þjóðólfshaga. Í skeiðinu varð Sigvaldi efstur á Sóldögg frá Skógsnesi í öðru sæti varð Aðalheiður Einarsdóttir á Amor frá Hvammi og þriðji varð Hermann Karlsson á Gítar frá Húsatóftum. Sigvaldi Lárus Guðmundsson sigraði svo einstaklingskeppnina og lið JÁ-Verks sigraði liðakeppnina. Það má því með sanni segja að þetta hafi verið glæsilegur árangur hjá okkar fólki í gærkvöldi. Öll úrlsitin eru hér http://eidfaxi.is/frettir/2011/04/sigvaldi-larus-sigurvegari-uppsveitadeildar |
Lið Jáverks. f.h. Sigvaldi Lárus,Líney og Guðrún Magnúsdóttir
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 27. apríl 2011 Hugmynd kastaði í gærmorgun. Folaldið var ekki komið á spena og frekar ræfilslegt í kuldanum. Við tókum hana heim og höfðum hana inni þangað til í morgun. Folaldið er kolsvört hryssa undan Hugin frá Haga og ég ætla bara að bíða með að tjá mig um útlitið núna því hún var öll í keng þegar ég sá hana. Tek betri myndir af folöldunum þegar styttir upp. Vonandi fer að hlýna og stytta upp. Það er alveg komið nóg af rigningu í bili. Túnin eru eins og blautur svampur og hvergi hægt að stíga niður nema sökkva í. |
Hugmynd og svarta folaldið.
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 25.apríl 2011. Það fyrsta sem ég sá í morgun þegar ég vaknaði var nýfætt folald í snjónum. Heldur kuldalegt að koma í heiminn við þessar aðstæður. Þrjár hryssur eiga að kasta fyrir mánaðarmótin og við vorum að vona að þær geymdu þetta aðeins, þangað til að hlýnaði dálítið. En Keila gat ekki beðið og í morgun kom rauðjarpur hestur undan Hring. Hann er frekar smár og loðinn, hefur greinilega reiknað með að vissara væri að hafa dálitinn feld til að skýla sér með í þessum kulda. Við tókum þau inn þar sem spáin var ekki góð en reiknum með að setja þau aftur úr á morgun. |
Keila með folaldið sitt inni í stíu.
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 24. apríl 2011 Katrín Rut keppti á Prins frá Fellskoti í töltmótinu 20 apríl s.l. Hún stóð sig mjög vel og náði inn í A-úrslit í 4-5 sæti jöfn Mörtu Margeirsdóttur. Í úrslitum héldu þær sætunum og voru enn jafnar í 4-5 sæti. Katrín Rut hreppti 4 sætið eftir að dregið var um niðurstöðu. Katrín var mjög dugleg að þjálfa Prins fyrir keppnina og það er eins með hana og Evu, það verður spennandi að sjá hvernig henni gengur í lokakeppninni eftir viku. Katrín er í öðru sæti í einstaklingskeppninni og því til mikils að vinna. |
Katrín Rut á Prins frá Fellskoti
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 24. apríl 2011 Ég gleymdi að setja inn frétt um töltmót Loga, Smára og Trausta sem haldið var 20. apríl s.l. í Flúðahöllinni. Líney keppti á Viðju, ég á Birtu, Sigvaldi á Lokk, Katrín Rut á Prins og Eva á Brá. Þessi hross eru öll frá Fellskoti. Sigvaldi náði inn í B-úrslit og Eva var efst í forkeppni í barnaflokki og fór því beint í A-úrslit. Hún hélt fyrsta sætinu og sigraði því töltið í barnaflokknum. Evu hefur gengið vel í keppni í vetur eftir að hún fór að keppa á betri hestum og það verður spennandi að fylgjast með hvernig henni mun ganga í lokamótinu í Uppsveitarkeppninni eftir viku. |
Eva á Brá frá Fellskoti
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 11.apríl 2011 S.l.föstudag fengum við skemmtilega heimsókn sem voru 30 hressir félagar frá Hrossaræktarfélagi Hrunamanna. Við sýndum þeim hrossin og aðstöðuna og fengum okkur síðan kaffi saman. Við hittum Hreppamenn oftar eftir að Flúðahöllin tók til starfa og á það samstarf örugglega eftir að aukast. Á meðfylgjandi mynd er Berglind Ágústsdóttir að afhenda Líneyju blóm. Takk fyrir komuna Hreppamenn, það var virkilega gaman að fá ykkur í heimsókn. |
Heimilisfólkið ásamt Berglindi Ágústdóttur Ljósm.Sig.Sigm.
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 4. apríl.2011. Fimmgangur unglinga var líka mjög skemmtilegur og gaman að sjá krakkana leggja á skeið, sum örugglega í fyrsta skipti. Katrín Rut keppti á Smjörva frá Fellskoti en hann er í eldri kantinum og góður fyrir byrjendur í skeiðgreinum. Katrín Rut er búin að þjálfa hann í smá tíma og það skilaði sér um helgina þegar hún vann B-úrlsitin og reið upp í annað sætið í fimmganginum. Flott hjá Katrínu og góð byrjun því hún er að keppa í fyrsta sinn í fimmgangi. Eftir fimmganginn er Katrín Rut komin upp í annað sætið í einstaklingskeppninni og Eva María í 3-4 sæti. http://hestamannafelagidlogi.bloggar.is/ |
Kartín Rut og Smjörvi. Ljósm.Sig.Sigm.
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 4.apríl 2011 Það var einnig keppni um helgina í þrígangi í barnaflokki hjá Uppsveitardeild Æskunnar og fimmgangi unglinga. Þessi keppni er örugglega komin til að vera. Krakkarnir stóðu sig vel og hafa mjög gott af að þurfa að kunna sitt prógram og einbeita sér að því að halda hestinum á réttri gangtegund allan hringinn. Völlurinn var ekki góður og hestarnir hnutu um holur í vellinum og mjög margir skiptu yfir á krossstökk eftir að hnjóta í beyjunum. Þetta er auðvitað eitthvað sem þarf að lag og ég hef verið að horfa á videópptöku og þar sést að hestarnir hnjóta mest á tveimur stöðum. Eva María keppti á Brá frá Fellskoti í barnaflokki og sigraði þríganginn. Við erum auðvitað mjög stolt af henni og hlökkum til að sjá hvernig henni gengur í töltinu eftir mánuð. Logakrökkunum gekk mjög vel og voru í þremur efstu sætunum. Hér eru öll úrslitin http://hestamannafelagidlogi.bloggar.is/ |
Úrslit í þrígangi barna. F.h. Eva María á Brá, Karitas á Bríet, Sölvi Freyr á Glampa og Helgi Valdimar á Hugnir. Ljósm. Sig. Sigm. |
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 2.apríl 2011 Keppt var í fimmgangi hjá Uppsveitadeildinni í Flúðahöllinni í gærkvöldi. Höllin var þéttsetin að vanda og keppnin spennandi og skemmtileg. Líney og Sigvaldi komust bæði í úrslit og stóðu sig mjög vel. Þau keppa bæði fyrir lið JÁ VERKS ásamt Guðrúnu Magnúsdóttur og komst hún líka í úrslit. Líney keppti á Musku frá Skógskoti og Sigvaldi keppti á Leiftur frá Búðardal. Frábær árangur hjá þeim í gærkvöldi. Úrslitin eru komin inn á Hestafréttir http://www.hestafrettir.is/Frettir/10311/ |
Úrslit í fimmgangi.
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 23. mars 2011. S.l. laugardag var Vetrarmót Loga og Trausta nr. 2 haldið í Hrísholti. Við Kristinn fórum á Stóðhestaveisluna í Rangárhöllinni en Líney skellti sér í keppnina á Viðju. Hún hlaut í 6.sætið og stóð sig greinilega vel eftir myndunum af dæma sem Sigurlína tók af þeim í Hrísholti í keppninni. Úrslitin er birt á vel Hestamannafélagsins Loga http://hestamannafelagidlogi.bloggar.is/ Myndir af Viðju og Líneyju. |
Líney á Viðju frá Fellskoti |
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 20.mars.2011. Hrossaræktarfélag Biskupstungna hefur staðið fyrir Unghrossadómum undanfarin ár. Þessir dómar hafa farið fram hér í Fellskoti og í ár fengum við kynbótadómarana Þorvald Kristjánsson og Hallgrím Sveinsson til að koma og dæma unghrossin. Skráning var svipuð og í fyrra um 20 hross frá 2ja-5vetra sem mættu. Dómararnir upplýstu áhorfendur um öll atriði dómanna og voru útskýringarnar mjög ýtarlegar og því fróðlegt að fylgjast með og læra í leiðinni hvernig svona dómar fara fram. Eigendur og áhorfendur voru mjög ánægðir með dómarana og hrossin voru skemmtilega ólík og mörg flott trippi sem komu í dóm bæði stóðhestar og hryssur. Myndir af dómunum. |
Sigvaldi stillir Rún frá
Fellskoti upp í byggingadóm. |
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 12.mars 2011 Við fórum í morgun og kíktum á Hring, en hann er í tamningu hjá Guðmundi Björgvinssyni á Ingólfshvoli og búinn að vera þar í rúma tvo mánuði. Við fengum að sjá hann í reið og ég tók nokkrar myndir af honum. Við erum bara ánægð með tamninguna. Hann er farinn að tölta vel og hefur gott brokk og er mikið viljugur, spurning hvort hann er vakur. Hann lofar bara góðu og verður spennandi að sjá framhaldið. Hringur er undan Hnotu og Hróðri og verður fjögurra vetra í vor. Myndirnar eru teknar úr bílnum, nokkrar á móti sól svo þær eru frekar dökkar. |
Helga Una á Hring í morgun.
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 11.mars 2011 Veðrið er æðislegt þessa dagana og gott reiðfæri. Verst að það á að rigna aftur eftir helgina. Við fengum heimsókn í morgun hópur frá Nature Explorer með ástralska ferðalanga kom til að skoða bóndabæ á Íslandi. Þessi hópur er í 7daga að ferðast um Ísland á þremur jeppum. Við erum vön að fá í heimsókn hestamenn en þetta var ágæt tilbreyting og skemmtilegt fólk. Við fórum í rekstur með hestana eftir hádegið og létum flest alla hestana hlaupa. Það er augljóst að þeir hafa gaman af að hlaupa saman og það er að færast meiri kraftur í sprettinn hjá þeim og ekki þörf á að reka á eftir þeim, þeir hlaupa bara sjálfir. |
Í kaffistofunni í morgun
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 6.mars.2011 Uppsveitardeild Æskunnar keppti í fjórgangi í gær í Flúðahöllinni. Mótið var vel sótt, keppendur voru 21 og áhorfendur fjölmennir. Krakkarnir stóðu sig með sóma og var mjög gaman að sjá þau í alvöru íþróttakeppni. Eva María fór beint í A-úrslit í barnaflokki og endaði í 4 sæti. Hún hefur aldrei keppt í fjórgangi áður svo þetta var mjög góður árangur hjá henni. Karitas Ármann var efst í barnaflokknum. Í unglingaflokki var Katrín Rut í fjórða sæti. Það er svolítið skemmtileg tilviljum að bæði Líney, Eva María og Katrín Rut skulu allar vera í fjórða sæti í fjórganginum. Spennandi að sjá hvort þær verða svona samtaka á næsta móti en það er 1. og 2. apríl þá verður keppt í fimmgangi hjá fullorðnum og þrígangi hjá börnum. Nokkrar myndir teknar af Sigurði Sigmundssyni. Úrslit eru á http://smari1945.123.is/ og http://hestamannafelagidlogi.bloggar.is/ |
F.H. Karitas á Bríet, Natan á
Spón, Sigríður Magnea á Agli og Eva María á Prins. Ljósm.Sigurður Sigmundsson |
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 5.mars.2011. Keppt var í Uppsveitardeildinni í fjórgangi í Reiðhöllinni á Flúðum í gærkvöldi. Okkar fólki gekk vel og komust bæði Líney og Sigvaldi í úrslit. Sigvaldi var í öðru sæti í B-úrslitum og Líney í fjórða sæti í A-úrslitum. Liðið þeirra JÁ-Verk er núna efst eftir þessi tvö mót. Aðalheiður sigraði aftur en hún sigraði fjórganginn líka í fyrra. Úrslitin eru komin inn á Eiðfaxa. http://eidfaxi.is/frettir/2011/03/adalheidur-og-blondal-sigrudu-fjorgangskeppni-uppsveitadeildar Öll sæti voru setin í áhorfendastúkunni og ekki annað að sjá en fólk ætli að fylgjast með keppninni í ár. |
Efstu í fjórgangi 2011 |
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 3. mars. 2011. Við fengum mjög skemmtilega heimsókn s.l. laugardag en það var hópur hestamanna úr Skagafirði sem kalla sig Riddara Norðursins. Einn allra hressasti hópur sem hingað hefur komið og ekki skemmdi að þeir sungu fyrir okkur nokkur lög. Ayatollah ( guð má vita hvað það þýðir) er Brynjólfur bóndi í Fagranesi Skagafirði en hann er einmitt maðurinn hennar Auðar Ingu sem vann hér í Fellskoti við tamningar fyrir nokkrum árum. Riddararnir heimsóttu Kjarnholt, Fellskot, Friðheima, Torfastaði og Efra-Langholt og buðu síðan eigendum þessara staða í veislu í Myrkholti um kvöldið. Hér eru nokkrar myndir frá heimsókninni. Myndir |
Riddarar Norðursins syngja
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 1.mars.2011 Jæja ég er búin að liggja í bókhaldinu síðastliðna daga og nætur og nú er það klárt, svo ég get snúið mér að því að laga heimasíðuna. En eins og þið hafið tekið eftir datt fréttasíðan út hjá mér og ég hef ekki aðgang að gögnunum svo ég get ekki sett inn þær fréttir sem duttu út. En ég get sett inn nýjar og það ætla ég bara að gera. Folaldasýning Hrossaræktarfélags Biskupstungna var haldin í Reiðhöllinni á Minniborg sl. sunnudag. Þátttakan var bara góð 20 folöld og við sem héldum að við myndum ekki fá mörg folöld á þessum árstíma. Þessi sýning átti að vera í lok október en sum folöld sýndu þá enn að vera lasin eftir pestina svo við frestuðum sýningunni bara. Við fórum með þrjú folöld á sýninguna og eitt af þeim komst í úrslit en það var Fantasía undan Hugmynd frá Fellskoti og Krák frá Blesastöðum. Hún varð í öðru sæti í hryssuflokknum. Ég birti úrslitin seinna og set inn þær myndir sem nothæfar eru, en flestar myndirnar sem ég tók voru lélegar. Ég er búin að fara yfir myndirnar og þær eru ekki nothæfar. Úrslitin hafa verið birt á http://www.hestafrettir.is/Frettir/10043/ |
Verðlaunahafar í hryssuflokki. |
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 27.febr.2011 Rosalega hefði verið gaman að vera á Worldcup 2011 í Óðinsvéum um helgina. Jóhann Skúlason vann töltið á Hnokka frá Fellskoti með miklum yfirburðum og stóð þar með við stóru orðin sem hann lét falla áður. Ég reyndi að horfa á þetta í beinni útsendingu en tengingin hjá mér er slæm og ég sá þetta skrikkjótt og get varla myndað mér skoðun á því hvernig hestarnir voru en ég heyrði hvaða tölur dómararnir gáfu og í forkeppninni var Jóhann langefstur á Hnokka með 8,27 og næstur var Nils Christian Larsen á Losta frá Strandarhjáleigu með 7,60. Í úrslitunum var minni munur á þeim Jóhann og Hnokki með 8,67 og Nils og Losti með 8,28. Glæsilegt hjá Jóhanni og greinilegt að þeir eru góðir saman hann og Hnokki. Hestafréttir birtu mjög ítarleg úrslit af mótinu. http://www.hestafrettir.is/Frettir/10000/ |
Hnokki og Hinrik Braga Ljósm. JE |
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 20.febr.2011 Gærdagurinn fór alveg í Afmælissýningu FT. Þó fyrsta Vetrarmótið okkar væri í gær þá var bara ekki hægt að láta FT sýninguna fram hjá sér fara svo við slepptum Vetrarmótinu. Það er ekki oft sem allir helstu reiðsnillingar landsins eru saman komnir á einn stað. Sigvaldi og Óli bróðir hans voru með sýnikennslu sem hét Ungir og efnilegir þar sem þeir sýndu töltþjálfun. Það atriði var mjög flott hjá þeim. Sigvaldi var einnig í öðru atriði sem hét Hólar Reiðkennarabraut 15 ára og svo keppti hann í nýju keppninni Hestamennska FT sem keppt var í í fyrsta sinn. Sigvaldi var í þriðja sæti jafn Antoni og Ísólfi en svo var dregið um sætið og hreppti Ísólfur þriðja sætið. Sigvaldi stóð sig mjög vel í þessu öllu og vorum við auðvitað mjög ánægðar með okkar mann. En Mette sigraði nýju keppnina með miklum yfirburðum. Fjallað er um sýninguna á Hestafréttum ttp://www.hestafrettir.is/Frettir/9925/ |
Sigvaldi í sýningunni í gær.
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 11.febr,2011. Fyrsta mótið í Uppsveitardeildinnii var í kvöld í Flúðahöllinni. Keppt var í Smala og voru þátttakendur 21. Keppnin var mjög skemmtileg og spennandi og voru margir keppendur með svipaðan tíma en svo eru auðvitað refsistig fyrir felldar keilur. Líney, Guðrún í Bræðratungu og Sigvaldi eru í sama liði og keppa fyrir JÁ VERK. Sigvaldi komst í úrslit og endaði í 6.sæti. á Þrumu frá Skógskoti. Guðrún lennti i 7.sæti en Líney náði ekki inn í úrslit. Hún keppti á ungum hesti Tígli frá Fellskoti en hann var dálítið hræddur enda aldrei farið í keppni áður, en annars gekk henni bara vel og fékk ágætan tíma í seinni umferðinni. Það kom greinilega í ljós að það er betra að vera á gömlum og reyndum hestum í svona keppni. Sá sem vann Einar Logi var á 20 vetra gamalli meri. Ég set inn nokkrrar mynir sem ég tók í kvöld. Smalinn myndir. |
Sigvaldi að lokinni keppni.
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 5.febrúar 2011. Eg held að allir séu kátir með snjóinn. Hestarnir velta sér og hundurinn kann sér ekki læti hoppar og skoppar í snjónum. Núna er bara gaman að ríða út mjúkt og gott undir fæti fyrir hestana. Við fórum með öll hrossin í rekstur í gær og létum þau hlaupa í tveimur hópum. Gott að leyfa þeim að spretta úr spori án knapa líka. Ég smellti mynd af öðrum hópnum þegar þeir komu til baka |
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 29.janúar 2011. Úrtakan fyrir Uppsveitardeildina fór fram í dag í Reiðhöllinni á Fúðum. Það var mikil þátttaka 21 keppandi sem tóku þátt í fjórgangi og fimmgangi frá Loga Smára og Trausta. Líney átti sæti í deildinni en Sigvaldi tók þátt í úrtökunni í dag. Hann keppti á Breiðfjörð frá Búðardal í fjórgangi og varð í 3.sæti Í fimmganginum keppti hann á Þrumu frá Skógskoti og varð í öðru sæti. Svo þetta byrjar bara vel hjá honum. Ég bíst við að úrslitin verði birt á vefnum www.smari.is. |
Sigvaldi og Þruma frá Skógskoti
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 25.janúar.2011 Nú er varla hægt að tala um vetur þó enn sé janúar. Það heyrist í álftinni eins og á vorin og reiðvegirnir eru blautir og minna frekar á vor en vetur. Við höfum aðeins verið að skreppa með hrossin í Reiðhöllina á Flúðum og það er bara snilld, mjög góð aðstaða. Nú er svo stutt að fara þangað eftir að brúin var opnuð yfir Hvítá hjá Bræðratungu, bara smá spotti. Sigvaldi og Líney temja af kappi og gengur mjög vel með hrossin, engin vandamál og sum allavega komin í form. |
Nýja brúin yfir Hvítá
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 18.jan.2010 Loksins fengum við smá snjó. Það er kærkomið að fá svolítið mýkra undir fæti fyrir hrossin. Ég fann mikinn mun á hrossunum sem ég fór á bak bæði léttari og skemmtilegri. En svo spáir rigningu svo það er ekki að sjá að við fáum að hafa snjóinn lengi. Dagurinn í gær fór í að smala heim hrossunum og taka DNA sýni úr hryssum og stóðhestum. Gekk reyndar fljótt og vel og gott að ljúka því af. Stefni að því að fara út með myndavélina í vikunni og festa á filmu einhver tamningarhross. Það er orðið langt síðan ég hef komið því í verk. |
Smá snjór á hlaðinu.
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 12.jan.2011 Ég sá viðtal við Jóhann Skúlason á Hestafréttum þar sem hann er spurður um Hnokka frá Fellskoti. Hér er hluti af viðtalinu: Hvernig er að ríða hesti eins og Hnokka? |
Hér er Hinrik Bragason á Hnokka.
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 8.jan.2011 Við skelltum hrossunum í rekstur í morgun. Reiðvegurinn er mjög harður núna í frostinu svo við fórum fram bakkana með Tungufljótinu, þar er mýkra undir fæti og betra fyrir hrossin að spretta úr spori. Það er gott að reka hrossin alla vega einu sinni í viku, það gerir bara þjálfunina fjölbreyttari og skemmtilegri fyrir hrossin. |
Hrossin á leið niður að
Tungufljóti í morgun |
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 7.janúar 2011. Jæja þá er allt að komast í venjulegt horf eftir jóla og áramótaveislur. Nú er búið að járna öll hrossin sem tekin voru inn og við erum byrjuð að trimma þau eftir fríið. Við erum mjög ánægð með breytinguna sem gerð var á aðstöðunni í hesthúsinu. Þar er allt miklu rýmra og svo fengum við þessa fínu skápa undir reiðtygin. Síðan var settur skeljasandur í skemmuna svo nú er allt í toppstandi og ekkert að vanbúnaði að hefja tamningarnar af fullum krafti. Það fer mjög vel um folöldin í nýja húsinu og það eru enn að koma folöld í fóðrun og tvö komu í gær og fleiri væntanleg um helgina svo það eru fá pláss laus. |
Nokkur folöld við stallinn.
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 19.des. 2010 Ég verð að viðurkenna að ég hef verið löt að setja inn fréttir að undanförnu. Ætli ég sé ekki bara að vesenast í jólaundirbúningi eins og allar hinar kellurnar og gleymi bara að kveikja á tölvunni. En þeir eru búnir að vera duglegir bændur hér á bæ og hafa staðið í ströngu við að útbúa nýjar stíur fyrir folöldin í gamla hesthúsinu. Nú er allt klárt og hægt að setja folöldin inn í húsið á morgun ef vill. Það er bara gott að þessu smíðastandi skuli vera lokið því ekki hefur verið hægt að ríða út á meðan, því tæki og tól fylgja alltaf svona framkvæmdum. Gamla hesthúsið er óþekkjanlegt og orðið mjög flott. Ég er viss um að það á eftir að fara vel um folöldin í nýju stíunum og spennandi að taka þau inn. |
Svona lítur folaldahúsið út.
|
| 11. des. 2010. Í dag fer Vals frá Fellskoti til Norrköping og þaðan fer hann til Finnlands. Nýi eigandi hans er Anni Husu i Finnlandi. Vals er undan Moldu gömlu frá Viðvík og Þorvari frá Hólum. Við munum sakna Vals hann er bæði fallegur og góður hestur. Við óskum nýjum eiganda til hamingju með hestinn og vonum að hann reynist henni vel. |
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 1. des.2010. Það voru gleðifréttir að heyra að Hnokki er kominn aftur til Jóhanns Skúlasonar í Danmörku. Jói var með Hnokka í fyrravor og keppti á honum á World Cup mótinu í Óðinsvéum og vann töltið á honum þar. Nú er hann nýbúinn að járna Hnokka og sagði að hann væri í finu standi og nú hæfist þjálfunin og svo kæmi bara í ljós hvert framhaldið yrði. Jóhann er margfaldur heimsmeistari og ekki spurning að Hnokki er í góðum höndum hjá honum. |
Hnokki og Hinrik Bragason |
| 21.nóv.2010 Nokkur pláss eru laus fyrir folöld í fóðrun í vetur. Þar sem plássið fyrir folöldin verður talsvert meira eftir breytinguna á hesthúsinu þá getum við tekið fleiri folöld í innifóðrun en áður. Verð á mánuði er 10.000 kr. Folöldin eru sett út alla daga og hanga ekki í gerði heldur fara út í girðingarhólf þar sem rúmt er um þau og þau geta leikið sér að vild. Upplýsingar í síma 8999612 eða 8998616 |
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 18.nóv.2010 Sigvaldi Lárus er komin heim en hann ásamt fleirum knáum íslendingum fóru til Bandaríkjanna á vegum Guðmars Þórs Péturssonar og tóku þátt í sýningunni Equine Affaire. Þeir voru 8 knaparnir sem riðu bæði bjórtölt, eins og það er kallað, glæsilega skrautreið og í lokinn fljúgandi skeið á milli elda sem lagðir voru þvert í gegnum 5000 manna höllina. Hópurinn kallar sig The Knights of Iceland og vakti hann gríðarlega athygli meðal áhorfenda hversu mikill hraði, kraftur og mýgt íslenski hesturinn býr yfir. Margir lögðu leið sína fyrst og fremst til að líta augum á íslendingana. Þetta er glæsileg kynning á íslenska hestinum þarna úti og er starf Guðmars Þórs frábært fyrir íslenska hestinn.
Hér má sjá Sigvalda ásamt hinum í hópnum.
|
The Knights of Iceland
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 15. nóv. 2010. Dagurinn fór í að flokka hrossin í hópa og vatna og gefa rúllur. Undanfarið hefur verið algjört vatnsleysi í flest öllum hólfum og Kristinn keyrir vatn flesta daga. Það er gríðarleg vinna að vatna svona mörgum hrossum en það er algjör nauðsyn þau verða að fá vatn. Það fer að verða spurning um að leggja vatn í hólfin því langan tíma í sumar þurfti líka að vatna í sumum hólfum. Ég var ekki með myndavélina með í dag svo ég set hérna mynd frá í fyrra þegar Kristinn var að gefa hrossunum. |
Kristinn bóndi og traktorinn
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 15. nóv. 2010. Fróði á afmæli í dag og varð 4.ára. Afmælisveislan var haldin í gær 14. nóv. en þann dag á pabbi hans afmæli svo þetta var tvöfalt afmæli. Fróði fékk dót í afmælisgjöf og á myndinni sitja þau á gólfinu Fróði og frænka hans Guðrún Birna og leika sér meðan fullorðna fólkið gæðir sér á kökum og brauðtertum. |
Fróði og Guðrún Birna
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 7. nóv. 2010. Í gær tókum við folaldið undan Bliku en Blika á að fara til Þýskalands 23. nóv.. Hún fær ekki fararleyfi ef hún er enn mjólkandi. Svo Álfheiður litla varð að fara inn og við sóttum annað folald til að vera henni til samlætis svo henni leiddist ekki eins mikið. Þau eru bara róleg inni og virðast ætla að verða fljót að gleyma mæðrum sínum enda eru smemmköstuð folöld orðin frekar sjálfstæð og elta ekki mæður sínar allan daginn. Skreppa bara til að fá sér sopa af og til. Við leyfum þeim að vera úti á daginn meðan veðrið er gott. |
Álfheiður og Blika í sept.
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 4. nóv. 2010. Núna er verið að breyta gamla hesthúsinu í folalda og unghrossa stíur. Búið er að rífa allt út úr húsinu og í dag verður byrjað að steypa í gólfið og gera klárt fyrir innréttingarnar. Það er Goðatún ehf. sem sér um smíði á innréttingunum en það er sama fyrirtækið sem smíðaði innréttingarnar fyrir stóðhestana. Allt tekur þetta tíma en verður bara fínt þegar því er lokið. Folöldin virðast hafa náð sér eftir veikindin í haust og erum við að vona að þau séu öll orðin heilbrigð. Svo þau eiga að geta beðið úti meðan verið er að innrétta húsið fyrir þau. |
Hrossin í haustblíðunni.
|
| 29.okt. 2010 Hér þeysir Sigvaldi á Ara frá Fellskoti. Hann er á fjórða vetur undan Aroni frá Strandarhjáleigu og Evu frá Skarði. Ari er stór og fallegur foli en ekkert sérstaklega líkur Aronsafkvæmum. Eva móðir hans er undan Adam frá Meðalfelli og hefur gefið okkur góð hross og flest eru þau stór og falleg. Evu keyptum við folald hjá Kristni í Skarði en hún er orðin 19. vetra og hefur alls átt 11 afkvæmi. Allir hestar undan henni, eru stóðhestar tveir eru í Danmörku Barri og Silfurgeisli báðir klárhestar með 1.verðl. Tveir eru til hér Ari og Máni báðir ógeltir. Máni er undan Roða frá Múla og er ári yngri en Ari. |
Sigvaldi og Ari
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 27. okt. 2010 Frumtamningarnar ganga vel og öll trippin orðin reiðfær. Þau eru auðvitað ekki komin með jafnvægi með knapa á baki en þæg og auðveld og hægt að ríða þeim þangað sem á að fara. Ég tók myndir í dag af stóðhestunum og hér er Sigvaldi á Þætti en hann er á fjórða vetur undan List frá Fellskoti og Hnokka frá Fellskoti. |
Sigvaldi og Þáttur frá Fellskoti |
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 19.okt. 2010 Í dag var verið að leggja lokahönd á stóðhestastíurnar. Eingöngu er eftir að ákveða hvort einhverjir stallar verða settir þar eða ekki. Þessi breyting í hesthúsinu er mjög góð og nú sjáum við fram á að hafa nóg pláss og það mun fara vel um stóðhestana því stíurnar eru rúmgóðar og gúmmí í gólfi. Goðatún ehf sá um alla smíði og uppsetningu með aðstoð heimamanna. |
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 17. okt.2010 Haustlitirnir hafa verið alveg sérstaklega fallegir undanfarið. Veðráttan hefur verið óvanalega góð í haust og eftir venju hefði sprettu átt að ljúka í september en grasið í görðunum hjá okkur og á sumum túnum er enn alveg grænt eins og um sumar væri. Ég var að hugsa um að slá garðinn einu sinni enn. Fáránlegt að slá garðinn um miðjan október. Frumtamningar ganga mjög vel og verið er að breyta í hesthúsinu og hanna 7 stóðhestastíur þar sem folöld og trippi voru áður en þau verða færð í gamla hesthúsið. Auðvitað hafa þessar framkvæmdir eitthvað tafið fyrir tamningum því suma daga hefur varla verið vært í húsinu fyrir hávaða. Stóðhestastíurnar eru alveg að verða tilbúnar en eftir að hanna stíur fyrir folöldin í gamla húsinu. |
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 8.okt.201 Ég hef áður sagt frá því að Helena undan Hnotu og Álfi frá Selfossi slasaðist þegar hún var folald haustið 2008. Helena hefur verið úti í sumar og fengið að vera með öðrum hrossum en það var fyrst í vor sem hún fékk að fara út úr stíunni eftir meiðslin. Hún hefur verið til meðhöndlunar hjá dýralæknunum á Stuðlum af og til síðan hún slasaðist og í gær fór ég með hana í rötgen myndatöku. Myndirnar sýndu mikinn bata þó hún hafi verið á hlaupum með hrossunum í sumar og þar sem Helena er bara tveggja vetra hefur hún góðan tíma til að styrkjast fram að tamningaraldri. Auðvitað veit ég að það er alls ekki víst að hún verði albata og að hún verði til reiðar. En það er allt í lagi að láta sig dreyma, sumir draumar rætast, ekki satt. |
Helena hefur þroskast vel
í sumar |
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 3.okt.2010 Á haustin er oftast rólegra í hestamennskunni, dregið undan hrossunum og þau sett í frí. Flest okkar hross fengu að fara í frí nema söluhross og svo auðvitað trippin sem verið er að byrja að frumtemja. Á meðfylgjandi mynd er Sigvaldi á 5 vetra fola sem heitir Kóngur frá Fellskoti. Hann er undan 1v. hryssunni Þrá frá Kópareykjum og Aroni frá Strandarhöfði. Kóngur er mjög stór og fallegur hestur. Hann er alveg traustur og verður rúmur og hágengur alhliða hestur. Hann fékk ekki mikla tamningu í sumar frekar en aðrir hestar vegna hestapestarinnar, en hann tekur miklum framförum þessa dagana og ég sé mikinn mun á honum bara frá því þetta video var tekið. Video http://www.youtube.com/watch?v=mlfgXwegukM |
Sigvaldi og Kóngur
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 30. sept.2010. Nú er september að enda og undanfarið hefur ringt gríðarega mikið. Enn er frekar hlýtt í veðri en það er spurning hvort hrossin veikist aftur þegar kalsa rigningarnar byrja. Vonandi ekki. Hér er Sigvaldi á Rúbín frá Fellskoti. Hann er 5 vetra, undan Aroni frá Strandarhöfði og Perlu frá Bringu. Hann er fyrsta afkvæmi Perlu sem við temjum. Rúbín er bolléttur og flottur foli með góðar hreyfingar. |
Rúbín Knapi Sigvaldi L.Guðm. |
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 30.sept.2010 Sigvaldi er byrjaður að temja trippin sem eru á fjórða vetur.Ég kem með myndir af þeim þegar þau eru komin í reið. En þessi hryssa er 4.vetra og heitir Dís frá Reykjavík. Faðirinn er Sólon frá Hóli og móðir hennar er List frá Strandarhöfði. Við þekkjum ekkert móður hennar en hún er undan Heldi frá Brún og Sportssokku frá Strandarhöfði. Dís er ekki komin langt í tamningu svo full fljótt er að spá í hvernig hún muni koma út. |
Dís Knapi Sigvaldi Guðmundss.
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 27. sept.2010. Það er kominn nýr hundur í Fellskot. Það telst nú varla frétt þó það komi nýr hundur á sveitabæ, en hér hefur ekki verið hundur í mörg ár eða síðan keyrt var yfir hundinn okkar fyrir löngu síðan. En Líney og Bent fengu sér hund fyrir nokkrum dögum og heitir hann Bangsi og er bara lítill hvolpur. Krökkunum finnst rosalega gaman af að leika við hann og mér sýnist að hann sé alveg til í tuskið. Bangsi er blanda af border colly og íslenskum hundi og er mjög sætur og rólegur og þessa dagana er hann að kanna hvað má og hvað má ekki. Kisumamma er núna með kettlinga svo það er nú best að vera ekkert að flækjast of nálægt henni því hún vill bara fá að vera í friði. Skrítnir þessir kettir vilja ekkert leika sér. |
Bangsi úti á hlaði. |
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 26. sept.2010. Hesturinn á myndinni heitir Dropi frá Fellskoti. Hann er undan Djásn frá Bergstöðum og Þorra frá Þúfu. Dropi er 4. vetra og ekki mikið taminn eins og öll 4 vetra hrossin hér á bæ. Þau voru gerð reiðfær s.l. haust og svo stóð til að temja þau í sumar en pestin sá um að þau voru ekki í tamningu nema rúman mánuð. Djásn móðir Dropa er góð 1.v. alhliða hryssa sem hefur gefið okkur 4 skjótt afkvæmi og er Dropi sá eini sem er einlitur, að vísu með stjörnu. |
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 23. sept.2010. Vorum að setja inn ný hross á sölusíðuna.Fulltamin reiðhross og eða keppnishross og einnig efnileg vel ættuð unghross. Fleiri hross verða sett inn á næstu dögum og einnig fleiri myndir af hrossunum. Á myndinni er Líney á Brá frá Fellskoti en hún er ein af þessum söluhrossum. |
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 21. sept.2010. Tamningartrippin eru komin í frí og þó að tamningin hafi verið í stuttan tíma vegna flensunnar þá voru þau flest farin að sýna hvað í þeim býr. Við tókum myndir af þeim og hér er fyrsta myndin en hún er af Bjarti frá Fellskoti en hann er 4 vetra og undan Drift frá Bergstöðum og Dyn frá Hvammi. Flottur á litinn og spennandi foli. |
Bjartur og Sigvaldi
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 9. sept.2010. Nú eru haustrigninarnar byrjaðar. Sumarið var frábært alltaf gott veður og bændur eiga gríðarlegt magn af góðum heyjum því sprettan hefur verið mjög mikil. Við erum að byrja að draga undan þeim trippum sem við ætlum að gefa frí um tíma. Ætlunin er að taka myndir af þeim og setja þau svo á meiri haga fram að áramótum. Eitthvað verður áfram í þjálfun af söluhestum og svo styttist í að byrjað verði á trippum á fjórða vetur. Við eigum 9 sem eru á þeim aldri og fjögur eru undan Hróðri frá Refstöðum. Svo er einn foli undan Aroni frá Strandarhöfði, einn undan Huga frá Hafsteinsstöðum, Leikni frá Vakursstöðum og Hnokka frá Fellskoti. Ekki er ljóst á hvaða stigi þessi hestapest er hér en þau hross sem við höfum verið að þjálfa hafa verið í lagi. En við sjáum samt merki um pestina í nokkrum hrossum og folöldin eru á slæmu stigi núna og sóttum við þrjú heim í dag til að meðhöndla þau með pensilíni. Það er áhyggjuefni hvernig hrossunum reiðir af þegar fer að kólna því greinilegt er að eftir blauta nótt eins og síðastliðna nótt þá sést meira af hvítu gumsi í nösunum á hrossunum hér í morgun. |
Hryssurnar og trippin eru í Arnarholti á sumrin.
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 5. sept.2010. Sigvaldi útskrifaðist sem þjálfari og reiðkennari frá Hólum 3. sept. Sigvaldi stóð sig mjög vel og hlaut bæði Morgunblaðshnakkinn, fyrir hæstu meðaleinkuun, og LH-styttuna, fyrir besta árangur í kennslufræði og reiðkennslu. Við óskum honum innilega til hamingju með frábæran árangur. Frétt um brautskráninguna er hægt að lesa á vef Hólaskóla http://www2.holar.is Meðfylgjandi mynd sá ég á holar.is og stóðst ekki mátið að birta hana hér. Ljósm.Pétur Ingi Björnsson |
Sigvaldi í miðjunni
og hlaðinn verðlaunum |
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 3. sept. 2010 Ég get ekki sagt að ég hafi verið dugleg að setja inn efni á síðuna undanfarið. En ég hef verið á flakki um Danmörku s.l. viku með félögum úr Hrossaræktarfélagi Biskupstungna. Við vorum 17 sem skelltum okkur í þessa ferð og heimsóttum hrossabú í Danmörku. Jóhann Skúlason var með okkur allan tímann og á heiðurinn að því hvað þetta tókst vel, enda var verulega gaman og verður erfitt að toppa þessa ferð. Við heimsóttum 8 hrossabú og það var mjög vel tekið á móti okkur og var ferðin bæði skemmtileg og fróðleg. Ég set seinna ferðasöguna hér inn, ég þarf eiginlega fyrst að semja hana og taka saman myndir úr ferðinni. En þetta var skemmtilegasta ferð til útlanda sem ég hef farið. |
Hópurinn fyrir framan hesthúsið
hjá Jóhanni Skúlasyni. |
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 21. ágúst 2010. Þáttur frá Fellskoti er 3 vetra jarpur stóðhestur undan Hnokka frá Fellskoti og List frá Fellskoti. Guttormur í Skálholti valdi hann til að sinna sínum hryssum í sumar og er hann þar enn. Byrjað verður að temja Þátt í haust og gera hann reiðfæran fyrir áramót. Það verður spennandi að sjá hvoru hann líkist meira móður sinni eða föður. Þessi foli hefur flottar hreyfingar og allur gangur laus. Ég tók nokkrar myndir af honum í dag í hryssuhópnum í Skálholti og er ekki annað að sjá en hann uni sér vel í stóðhestahlutverkinu. |
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 10. ágúst 2010. Hringur var tekinn heim í dag og sónað úr girðingunni. Auðvitað þarf að sóna aftur þær hryssur sem ekki var hægt að staðfesta fyl í. Þær gætu verið fengnar þó það sjáist ekki núna. Alls hafa 34 hryssur verið hjá honum frá því í vor og þar af voru 12 á húsi. Af þessum 34 eru 27 fengnar. Sjáum betur þegar búið er að sóna restina hvernig lokaniðurstaðan er. Hringur er í fínu formi og hefur greinilega haft það gott á Gýgjarhóli, enda var hann með hryssuhópinn sínn í túninu þar á bæ. Öll aðstaða var þar mjög góð og auðvelt að reka hópinn heim og sónarskoða. |
Hryssurnar komar í gerðið.
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 5.ágúst 2010 Hér er sól og hiti alla daga. Veðrið er eins og á Majorka. Alveg óþarfi að eyða í sólarlandaferð bara skella sér í Tungurnar. Loksins er aftur líf og fjör í hesthúsinu í Fellskoti. Flestir hestarnir eru orðnir hressir og virðast þola brúkunina vel svo við erum bjartsýn og vonum bara að þessi pest sé gengin yfir. Um mánaðarmótin tók hér til starfa tamningamaðurinn Sigvaldi Lárus Guðmundsson. Hann var að ljúka námi á Hólum í vor en hann var á reiðkennarabraut s.l. vetur. Sigvaldi flutti hingað ásamt Mörtu Gunnarsdóttur og dóttur þeira Elísabetu Líf. Við bjóðum þau innilega velkomin og erum hæstánægð með að fá þau á staðinn. |
Sigvaldi og Marta. |
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 3.ágúst 2010 Síðasta hryssan Lokkadís frá Bergstöðum er köstuð. Hún er mjög sein en hún var sónuð þrisvar í fyrra sumar og alltaf tóm svo eftir því sem við best vissum þá átti ekki að vera neitt folald í henni en hún kastaði 27. júlí rauðu hestfolaldi undan Tóni frá Austurkoti. Lokkadís fór undir Hring í dag. Við erum ekki mjög heppin þetta árið fengum fleiri hestfolöld en hryssur eða 6 hesta og 4 hryssur. Verðum bara heppnari næsta ár. |
Þessi mynd var tekin í dag
af Lokkadís og rauða folaldinu. |
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 27. júlí 2010. Við erum aðeins farin að fara á bak og erum að járna slatta af hrossunum og ætlum að fara að þjálfa þau hægt og rólega. Við sjáum auðvitað að hrossin eru með þessa pest það fer ekkert milli mála en sum virðast alveg í lagi að öðru leiti en þau eru með glært nefrennsli og stundum aðeins hvítt. Öll sem hafa meiri einkenni setjum við aftur út og gefum þeim lengra frí. Það er ekki að sjá að hrossin hafi verið veik því þau hafa fitnað verulega og sum eru alveg spikuð og þurfa bara að fara í aðhald til að komast í form. Það er æðislegt að vera aftur komin í hnakkinn og vonandi verða hrossin ekki veik aftur þá leggst maður nú bara í þunglyndi. |
Hugmynd frá Fellskoti
með folaldið sitt. |
| 22. júlí 2010. Í dag var sónaðskoðað út úr girðingunni hjá Hring og var útkoman bara prýðileg. Hjá Hring voru 21 hryssa 17 af þeim voru sónarskoðaðar og 12 af þeim fengngar. Við slepptum að skoða fjórar hryssur enda köstuðu þær fyrir stuttu síðan og var þeim bætt inn á hann fyrir tveimur vikum svo til lítils að sóna þær strax. Á húsmálinu var haldið undir Hring 12 hryssum og 11 af þeim voru sónaðar fengnar svo hann fyljar vel þrátt fyrir hóstapest. Búinn að fylja 23 hryssur það sem af er sumrinu. Það verður spennandi að sjá útkomuna í lokin hvort hann nær að standa sig vel allt sumarið. Í haust er stemmt með kappann í frumtamningu enda verður hann fjögurra vetra næsta vor. |
Hringur skokkar kringum hryssurnar.
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 19. júlí 2010. Við kláruðum heysskapinn í gær og það tók bara 4 daga að heyja frá fimmtudegi til sunnudags enda veðrið alveg sérstakt. Vorum reyndar búin að heyja smá fyrstu vikuna í júlí. En það var brakandi þurrkur og sól núna alla helgina og ef eitthvað var þá þornaði heyið of mikið. Hestarnir vilja ekki hafa heyið of þurrt, þeim finnst það lystugra aðeins rakt. Megnið af heyinu var slegið og rúllað daginn eftir. Það er notaleg tilfinning að vera búin að ná góðum heyjum því veðráttan ræður algjörlega hvort hægt er að heyja eða ekki. Oft hefur það gerst að rigningar standi yfir í lengri tíma á suðurlandi og grasið fúni á túnunum á meðan. Reyndar hefur verið þurrt veður undanfarin sumur. Við tókum nokkrar myndir í blíðunnni um helgina og ég setti þær í myndaalbúmið. |
Verið að pakka rúllum á bakkanum við Fljótið í gær.
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 10. júlí 2010. Þetta er skrítið sumar. Kominn 10 júlí og enn bíðum við eftir því að hrossin verði frísk. Við tókum heim ungu hrossin og setjum þau inn á morgnana því hrossin hlaupa í spik þó þau séu með þessa pest. Við látum þau standa inni megnið af deginum og setjum þau svo út á kvöldin. Það er alveg greinilegt að okkar hross eru ekki komin yfir þessa veiki. Allmörg hósta og mörg með nefrennsli. En greinilega eru þau á misjöfnu stigi og þau sem fyrst fengu þetta virðast vera að ná sér. Svo vonandi komumst við eitthvað á bak á næstunni. En folöldin eru farin að leika sér aftur eftir að hafa verið frekar dauf um tíma. Þessir tveir monthanar sem Guðrún Gígja tók mynd af eru greinilega frískir og fjörugir. Sá brúni er undan Keilu og Töfra en sá jarpi er undan Lögg og Hnokka. |
Fjörugir félagar
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 30. júní 2010. Drift frá Bergstöðum kastaði í gær leirljósu blesóttu hestfolaldi undan Hljómi frá Fellskoti. Sú gamla var lengi grunuð um að vera tóm þar sem hún hefur haft fyrir sið undanfarin ár að vera sónuð fylfull en missa svo fylið. Nú fannst henni tími til kominn að breyta til og kom með fínlegt og fallegt folald með mikið skásetta bóga. Hljómur gefur mikið blesótt og sennilega kemur það í gegnum föðurinn Huga frá Hafsteinsstöðum. Haukur Daðason á þetta folald en við fáum folöld undan Drift til skiptis. |
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 29.júní 2010 Alltaf er nú eitthvert hestastúss þó hrossin séu enn með hóstapestina. Við keyrðum 3 hryssur í sónar á Selfoss í dag og að þeim meðtöldum þá eru staðfest fyl í 8 hryssum hér í dag og eftir að sóna tvær hryssur sem voru á Árbakka og var haldið undir Héðinn frá Feti. En Sokkadís er sú eina sem er tóm núna. Reyndar kastaði Drift í dag og ég á eftir að fara og taka mynd af henni og folaldinu. Lokkadís er enn óköstuð og ekki vitað hvenær hún kastar því hún var í girðingu s.l.sumar. Svo það er enn eftir að stússast eitthvað með hryssur til graðhesta á næstunni. |
Reiðhrossin hafa lítið að gera þessa dagana.
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 21. júní 2010 Nú er stóðhestahaldinu lokið og flestar hryssurnar farnar heim og stóðhestarnir farnir í girðingar. Sveinn Hervar fór vestur og verður hjá Hrossaræktarsambandi Vesturlands. Huginn fór norður í gær og verður í Gauksmýri og Hringur fór í dag í girðingu á Gýgjarhóli. Nú er mest spennandi að fá að vita útkomuna og bíða eftir að hryssurnar verði sónaðar. Við erum búin að frétta af nokkrum hryssum og enn er of fljótt að segja til um árangurinn. Ég taldi saman hryssurnar sem haldið var hér á húsi og þær voru 56 samtals hjá þessum þremur hestum. |
Hringur skoðar fallega hryssu
þegar honum var sleppt í morgun. |
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 13. júní.2010 Það var heilmikil traffík hér á hlaðinu í dag. Hestakerrur með hryssur sem ýmist var verið að koma með eða sækja þær sem eru búnar. Nú styttist í að hestarnir fari í girðingar, sennilega fara þeir allir um svipað leiti um 20. júní. Svo þær hryssur sem koma núna verða að vera klárar svo hægt sé að halda þeim í þessari viku. Það hefur verið heilmikið annríki hjá öllum stóðhestunum og í síðustu viku fengum við Guðmar dýralækni til að sóna fyrir okkur svo við gætum raðið inn til þeirra þar sem svo margar hryssur voru að ganga í einu. Það auðveldar mikið að fá dýralækni til að segja okkur hvenær sé rétti tíminn til að halda hverri hryssu og við munum örugglega notfæra okkur þessa aðferð aftur. |
Nokkrar af þeim hryssum sem bíða eftir því að hitta stóðhest.
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 4. júní 2010. Þó ekki sé verið að fara á bak er samt heilmikið hestastúss hér á bæ. Við erum að halda hryssum alla daga undir Huginn frá Haga, Svein Hervar, Hring og Hljóm. Það eru núna hér um 30 hryssur sem eru í heimsókn hjá þessum stóðhestum og sem betur fer virðist hestapestin ekki hafa áhrif, alla vega ekki ennþá. Lögg er köstuð og kom með jarpan hest undan Hnokka. Það er frekar skrýtið að sjá hana með svona litt folald, það virðist ekki passa henni. Folaldið er gullfallegt reist og háfætt. Folöld eru reyndar alltaf sæt og krúttleg og ótrúlega fljót að reyna hlaupa og leika sér. Flest byrja að skottast í einhverja hringi kringum mömmu sína fyrsta daginn og stækka svo hringinn eftir því sem þau styrkjast. |
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 29. maí.2010. Þó hrossin sem áttu að fara í dóm frá okkur í vor séu veik þá fóru tvö hross frá Fellskoti í dóm í Danmörku fyrir stuttu síðan. Ég fékk senda mynd af stóðhestinum Silfurgeisla sem fór í ágætar tölur fyrir hæfileika og náði fyrstu verðlaunum. Eigandinn er Lone Högholt en hún sendi okkur mynd af folanum sem tekin var i kynbótadómnum. Knapi er Nils Christian Larsen. Silfurgeilsi er undan Evu frá Skarði og Eiði frá Oddhóli. Verið er að gera heimasíðu folans og er slóðin www.silfurgeisli.dk IS2005188471 Silfurgeisli frá Fellskoti Örmerki: 968000004048063 Litur: 8620 Vindóttur/mó stjörnótt Ræktandi: Kristinn Antonsson, María Þórarinsdóttir Eigandi: Høgholt & Høgholt ApS F.: IS1992186060 Eiður frá Oddhóli Ff.: IS1973135980 Gáski frá Hofsstöðum Fm.: IS1982235020 Eiða frá Skáney M.: IS1991286799 Eva frá Skarði Mf.: IS1979125040 Adam frá Meðalfelli Mm.: IS1980286752 Hetja frá Skarði Mál (cm): 147 - 133 - 139 - 70 - 147 - 38 - 48 - 45 - 6,7 - 30,0 - 19,0 Hófa mál: V.fr.: 9,2 - V.a.: 8,7 Sköpulag: 7,5 - 8,5 - 7,5 - 8,5 - 7,5 - 7,5 - 8,0 - 7,0 = 7,99 Hæfileikar: 8,5 - 8,5 - 5,0 - 9,0 - 8,5 - 9,0 - 8,0 = 8,00 Aðaleinkunn: 8,00 Hægt tölt: 9,0 Hægt stökk: 8,5 Sýnandi: Nils Christian Larsen |
Silfurgeisli og Nils Christian |
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 26. maí 2010. Hvítasunnudagur er alltaf aðal fermingardagurinn í Biskupstungum. Katrín Rut var fermd núna á hvítasunnudag í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi. Athöfnin var látlaus og falleg og allur dagurinn var einstaklega vel heppnaður. Veðrið var yndislegt og allir gestirnir í sólskins skapi. Nú styttist í skólaslitin í Reykholtskóla og þá kemur Katrín Rut til okkar í hestastússið eins og undanfarin sumur. |
Katrín Rut
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 23. maí.2010 Þegar við komum á fætur var Perla köstuð. Ekki lítið spennandi því henni var haldið undir Hnokka í fyrra vor. Og við vorum svo sannarlega heppin því hún kastaði bleikstjörnóttri hryssu sem líkist Hnokka mjög mikið. Það er ekki bara liturinn heldur er hún með langa fætur og sérstaklega grannan langan háls. Sú litla var nýstaðin á fætur, blaut og alls ekki tilbúin í myndatöku og virkaði ekkert sérstaklega flott svona á sig komin. Perla vildi bara fá frið við að karra folaldið og lét sem ég væri ekki til. Ég heimsæki þær seinna og tek betri myndir þegar hún er farin að standa almennilega í fæturna og rétta úr sér. |
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 23.maí 2010. Nú hef ég verið svo upptekin að ég hef ekki gefið mér tíma til að setja inn upplýsingar á vefinn. En betra er seint en aldrei og í fyrrinótt kom Eva frá Skarði með brúnskjótta hryssu undan Lokk frá Fellskoti en það er 5v. foli undan Lögg og Keili frá Miðsitju. Eva hefur alltaf gefið okkur falleg hross og 3 eru komin í fyrstu verðlaun undan henni. Eva er undan Hetju frá Skarði og Adam frá Meðalfelli. Ég skaust og tók mynd af Evu með nýfæddu folaldinu, en gaf mér ekki tíma til að stoppa og bíða þangað til ég næði góðri mynd, ég geri það bara seinna. En folaldið er stórt og myndarlegt og fallegt á litinn. Það mun ekki verða skortur á mjólk handa þessu folaldi vegna þess að Eva getur alveg mjólkað tveimur folöldum. Mjólkin lekur niður fætur hennar og hún er vön að leyfa öllum folöldum aö sjúga sem vilja og við höfum séð að sum folöldin okkar hafa notið góðs af og stökkva undir hana af og til þó þau eigi móður og sjúgi hana líka. Fínt að hafa svona hryssu stóðinu þá er ekki hætta á mjólkurskorti. |
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 19.maí 2010. Folöldin fæðast eitt af öðru og í nótt kastaði Molda gamla, en hún átti að kasta 1. maí svo hún hefur vel yfir. Hún er 26 vetra og getur varla átt mörg folöld úr þessu. En hún kom með moldóttan hest undan Auð frá Lundum. Ekki get ég nú sagt að þetta sé fallegt folald. Lítill kútur með stuttan háls og ég varð fyrir verulegum vonbrigðum, því ég var að vonast eftir fallegri hryssu undan henni svona í lokin. En sú gamla lítur vel út feit og pattaraleg og hún ver þetta folald sem mest hún má og finnst það fallegasta folald í heimi. Stoltið leynir sér ekki þar sem hún hringsnýst í kring um draumaprinsinn og engin hryssa þorir nálægt henni núna. Ég rétt náði mynd af þeim á hlaupum í morgun. |
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 15. maí 2010. Eik kastaði í nótt hestfolaldi undan Óskari frá Blesastöðum. Ég held að það sé brúnt en samt sérkennilegt á litinn því eyrun eru rauð að innan og svo er það með ál. Ég hef ekki séð svona lit áður. En folaldið er auðvitað mjög fallegt og ég hef ekki séð svona langan og vel settan háls á folaldi síðan Hnokki fæddist. Það verður spennandi að fylgjast með þessu folaldi því það gengur eins og könguló með of langar lappir. Eik er alsystir Hnotu og fyrsta afkvæmi hennar Erika 4v. í vor og lofar mjög góðu. |
|
| 14. maí 2010. Draumafolaldið fæddist í gær. Kristinn leit út um kl. hálf sex um morguninn og þá var komið folald. Hugmynd köstuð og komin jörp hryssa undan Kráki frá Blesastöðum. En Blika sem kastaði 2. maí var búin að stela folaldinu og var gríðarlega ánægð með tvö folöld og við urðum að fjarlægja hana úr hólfinu til að stilla til friðar og hún var ekki aldeilis á því að láta taka sig frá þessu fallega folaldi. En Hugmynd stendur sig vel sem móðir og það er ekki hægt annað en vera ánægð með hennar fyrsta folald, gullfalleg hryssa og stax byrjuð að leika sér. |
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 8.maí 2010. Þriðji stóðhesturinn sem við munum halda undir á húsi er Hringur frá Fellskoti. Hann er þriggja vetra í vor og þar af leiðandi ekki farinn að sanna sig sem kynbótahestur enn. Von er á 13 folöldum undan honum í sumar og verður spennandi að sjá fyrsta árganginn. Hringur er undan Hnotu frá Fellskoti og er því sammæðra Hnokka en faðir hans er Hróður frá Refsstöðum. Hann er hreyfingaflottur foli og sérstaklega fríður og fínlegur. Fyrirhugað er að fara með hann í byggingadóm í vor. Fleiri myndir af Hring teknar í dag. |
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 8.maí 2010. Sveinn Hervar frá Þúfu er væntanlegur hingað eftir helgi. Hann þarf varla að kynna því hann hefur sannað sig með góðum afkvæmum eins og Huginn. Hann er með 8,06 fyrir byggingu 8.38 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,25. Hann fékk 6 níur í hæfileikadómi fyrir tölt, brokk, stökk, vilja og geðslag, fegurð í reið og hægt tölt. |
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 8.maí 2010. Á hverju vori erum við með nokkra stóðhesta til notkunar á húsi. Í ár verða Huginn frá Haga og Sveinn Hervar hjá okkur. Báðir mjög góðir stóðhestar og báðir búnir að sanna sig sem gæðingafeður fyrir löngu síðan. Huginn kom í gær og fyrsta hryssan Hera frá Hraðastöðum mætti áðan. Svo nú byrjar ballið og von er á annari hryssu undir Hugin í dag. Sveinn Hervar kemur eftir helgi, sennilega á þriðjudaginn. Huginn er með 9.05 fyrir hæfileika og 7.84 fyrir byggingu. 8.57 í aðaleikunn. Hann fékk 9.0 fyrir tölt, skeið, fegurð í reið og hægt tölt og 10 fyrir vilja og geðslag. |
Huginn frá Haga
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 6.maí 2010. Keila var köstuðí morgun þegar við komum á fætur. Hún kom með brúnan hest undan Töfra frá Kjartansstöðum. Auðvitað var ég að vona að hún kæmi með hryssu en við verðum bara að reyna aftur til að fá hryssu undan Töfra. En folaldið er mjög háfætt og með grannan og langan háls. Ég hef ekki haft tíma til að fylgjast með þeim í dag svo ég hef ekki séð hvernig það hreyfir sig. Þetta er þriðja folald Keilu en hún er 1.v. hryssa undan Evu frá Skarði og Þorra frá Þúfu. |
| 4.maí 2010. Fyrsta folaldið fæddist í dag. Blika frá Sauðárkróki kastaði rauðskjóttri hryssu undan Álfi frá Selfossi. Folaldið er með þennan dæmigerða lit sem fylgir afkvæmum Álfs mikið hvít og blesótt. Meðalstórt og háfætt og fallegt folald. Eigandi folaldsins er austurísk kona Sabine Wild en hún keypti Bliku af okkur í fyrra. Við eigum von á 4 folöldum næstu daga svo nú fara í hönd verulega spennandi dagar. |
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 29. apríl 2010. Á sumardaginn fyrsta voru fyrstu nemendurnir í Reiðmanninum á Hvanneyri útskrifaðir . Námið er tveggja ára námsbraut í reiðmennsku og hrossarækt við Endurmenntun Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Kennt var á þremur stöðum í vetur en það var á Miðfossum, Dal í Mosfellsbæ og Rangárhöllinni. Allir nemendurnir kepptu síðan um Reynisbikarinn á sumardaginn fyrsta á Miðfossum. Keppt var í fjór-eöa fimmgangi og tölti. Þennan sama dag fer fram Skeifukeppnin hjá nemendum í hrossaræktargreinum LBHÍ svo það er mikil dagskrá allan daginn. Líney stóð sig frábærlega og vann töltið á Brá frá Fellskoti einnig var hún stigahæsti knapinn og vann síðan Reynisbikarinn. Ég held að þar með hafi hún unnið allt sem í boði var þennan dag. Við erum auðvitað mjög stolt af henni og óskum henni innilega til hamingju með glæsilegan árangur. Annar Tungnamaður var einnig að standa sig vel á Hvanneyri í vetur en það er nágranni okkar Rúnar Björn Guðmundsson á Vatnsleysu en hann hlaut Eiðfaxabikarinn og stóð efstur í Hrossarækt 2 sem er bóklegur áfangi í bændadeild. Innilegar hamingjuósir Rúnar. |
Líney með Reynisbikarinn
og Reynir Aðalsteinsson Ljósm. Helgi Bjarnason Úrslitin í töltinu.
Ljósm. Sigríður Egilsdóttir |
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 25.apríl 2010. Síðasta keppnin hjá Uppsveitardeildinni var s.l. föstudagskvöld. Það er frábært að þessu skuli lokið og þó að ég sé alveg viss um að öllum keppendum hafi þótt þetta skemmtileg mótaröð þá er samt heilmikil vinna að taka þátt í svona keppni. Núna var keppt í tölti og fljúgandi skeiði. Mér gekk ekkert sérstaklega vel en Líneyju gekk mjög vel og eftir forkeppni var hún í öðru sæti í töltinu en bætti um betur í úrslitunum og vann töltið með nokkrum yfirburðum. Úrslitin í töltinu fóru þannig: A-úrslit 1 Líney Kristinsdóttir / Brá frá Fellskoti 6,61 2 Kristbjörg Kristinsdóttir / Stígandi frá Stóra-Hofi 6,33 3 Gústaf Loftsson / Hrafntinna frá Miðfelli 5 5,78 4 Hólmfríður Kristjánsdóttir / Þokki frá Þjóðólfshaga 1 5,67 B-úrslit 1 Gústaf Loftsson / Hrafntinna frá Miðfelli 5 6,00 2 Aðalheiður Einarsdóttir / Glaðværð frá Fremri-Fitjum 5,94 3 Hermann Þór Karlsson / Prins frá Ytri-Bægisá II 5,67 4 Cora Claas / Hekla frá Halldórsstöðum 5,22 Sjá öll úrslitin á http://www.hestafrettir.is/Frettir/8324/ |
Líney efst í töltinu á Brá
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 24. apríl 2010. Ég tók þessa mynd af gosinu í Eyjafjallajökli út um stofugluggann hjá mér í síðustu viku. Undanfarið hefur verið skýjað svo ég hef ekki séð gosið. Ég reikna með að allt bændafólk sé með áhyggjur af sínum skepnum og þegar ég sé í sjónvarpinu hvernig er umhorfs á bæjunum undir Eyjafjöllum þá magnast áhyggjurnar auðvitað. Það er skelfilegt að sjá hvernig allt getur breyst jafnvel á einum sólarhring, en við erum svo varnarlaus gagnvart náttúruhamförum. Hér um slóðir hefur ekki verið öskufall ennþá, en samt þorum við ekki annað en gera áætlanir um hvernig við getum hýst öll hross ef til þess kæmi. En vonandi er það versta um garð gengið og gosið í rénum. Það þýðir ekkert annað en vera bara bjartsýn. |
Gosið í Eyjafjallajökli
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 23. apríl 2010 S.l. laugardag 18. apríl fórum við í ferðalag með félögum úr Hrossaræktarfélagi Biskupstungna. Við vorum 36 og auðvitað tókum við rútu og ferðinni var heitið vestur að skoða hrossaræktarbú. Við byrjuðum í morgunkaffi í Víðdal og þar tóku á móti okkur Sigurþór og Ragnar en þeir eru með hrossarækt í Holtakotum. Eftir góðar veitingar var ferðinni heitið vestur til Jakobs Sigurðssonar í Steinsholti. þar var gaman að koma og gæðingar í öllum stíum og Jakob lagði á Asa frá Lundum og sýndi okkur þar alvöru gæðing enda stóð hann efstur 4 vetra stóðhesta í kynbótadómi 2009.Þaðan var ferðinni heitið að Miðfossum. Fáir staðir státa af betri húsakosti en Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri er með aðstöðuna þar á leigu fyrir nemendur sína. Síðan fórum við í Söðulholt. Eigandinn Einar tók vel á móti okkur og sýndi okkur þar glæsiaðstöðu bæði hesthús og reiðskemmu og auðvitað flott hross. Siðasti viðkomustaður var Hrísdalur og þar var ekki síður tekið vel á móti okkur, fullt hús af glæsilegum hrossum og mjög góð aðstaða. Þar hittum við gamla Tungnamenn þau Sigurodd og Ásdísi. Ferðin var mjög skemmtileg og fróðleg og bestu þakkir fyrir okkur. Myndir úr ferðinni |
Í Söðulholti
Séð inn eftir hesthúsinu í Miðfossum
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 13. apríl 2010. Við fengum skemmtilega heimsókn á laugardaginn. Hingað komu um 20 félagar frá Hrossaræktarfélaginu í Grimsnesi, Grafningi og Laugardal. Það er mjög gaman að fá í heimsókn svona áhugasama hestamenn en hópurinn var í skoðunarferð á hrossaræktarbú í Biskupstungum. Við vonum að þeir hafi gert góða ferð í Tungurnar og þökkum þeim kærlega fyrir komuna. |
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 13. apríl 2010 Það þurfa ekki allir að vera stórir til að fara á hestbak. Það er alveg hægt að láta bara lyfta sér á bak. Og þegar maður er orðinn svona klár búinn að læra að stjórna stefnu og hraða þá er nú ekkert annað en drífa sig bara á hestbak þegar heim er komið úr leikskólanum. Fróði er orðinn gríðarlega flottur knapi og Nasi gamli fær sko næga hreyfingu því sá stutti vill fara hratt og kann alveg að nota pískinn. |
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 28. mars. 2010. Ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands var í Ölfushöllinni í gær. 26 folar voru sýndir og 3 hryssur en það er einmitt nýbreytni að bjóða upp á byggingardóm fyrir unghryssur líka. Áhorfendur voru ekki margir en folarnir voru mjög jafnir og flottir. Byggingadómar hófust kl. 15.00 og síðan byrjaði aðalsýningin kl. 20.00. Við fórum með Hring á sýninguna en hann verður þriggja vetra í vor og er undan Hnotu frá Fellskoti og Hróðri frá Refstöðum. Dómararnir völdu Hring í fyrsta sætið svo það var ekki til einskis sem við tókum hann með á sýninguna. Hryssan Þorlfriður frá Skagaströnd undan Sunnu frá Skagaströnd og Hnokka frá Fellskoti vakti mikla athygli enda glæsihryssa sem verður tveggja vetra í vor. Ég ætla ekki að reyna að telja upp alla þá fola sem mér fannst flottir því þeir voru svo margir en nefni þó Kolbein frá Hrafnsholti undan Stála frá Kjarri og Fjöður frá Langholti. Hann var í öðru sæti í þriggja vetra flokknum og völdu áhorfendur hann líka sem glæsilegasta folann og áhorfendur völdu Kolskegg frá Kjarnholtum í tveggja vetra flokknum. Tveggja vetra folar. 1. sæti Krókus frá Dalbæ 2. sæti Kolskeggur frá Kjarnholtum 3. sæti Sjálfur frá Austurkoti Þriggja vetra folar. 1. sæti Hringur frá Fellskoti 2. sæti Kolbeinn frá Hrafnsholti 3. sæti Prati frá Borg |
Hringur í Ölfushöllinni í gær.
Líney að taka við verðlaununum fyrir Hring |
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 28. mars.2010. Keppt var í fimmgangi í Uppsveitardeildinni s.l. föstudagskvöld í Flúðahöllinni. Mér gekk nokkuð vel og komst í A-úrslit á Eskimær frá Friðheimum. Hér eru úrslitin: B úrslit Ég á engar myndir frá mótinu en á von á nokkrum fljótlega. |
María og Eskimær
Eskimær á skeiði
|
| 25. mars.2010. Í dag kíktum við á Spes en hún er í þjálfun á Árbakka hjá Huldu og Hinna. Spes er verulega efnileg alhliðahryssa undan Snót frá Fellskoti Sveins Hervarsdóttur og Hnokka. En hún er fyrsta afkvæmi Hnokka sem við temjum. Spes er greinilega á réttri leið hjá þeim hjónum og við erum mjög ánægð með útkomuna. Stefnt er með hana í dóm í vor. |
Hinrik og Spes
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 24. mars. 2010. Annað Vetrarmót Loga og Trausta var haldið s.l. laugardag í Ölfushöllinni. Við kepptum öll sem erum að ríða út hér á bæ en við förum yfirleitt bara á þeim tamningar og þjálfunarhrossum sem við erum með hverju sinni. Okkur gekk bara nokkuð vel. Í unghrossaflokknum var ég í fyrsta sæti á Birtu, Líney í þriðja sæti á Þyrnirós og Nína Hrefna í fimmta sæti á Vordísi. Í fullorðinsflokknum lennti ég í þriðja sæti á Heru og Líney í fjórða sæti á Prins. Eva María var í þriðja sæti á Krumma. Ég hef ekki enn séð úrslitin birt en ég hef fengið sendar nokkrar myndir sem voru teknar á mótinu. |
Efstu í unghrossaflokki.
|
| 19. mars. 2010. Ég fór á Selfoss með tvær hryssur til dýralæknanna á Stuðlum á þriðjudaginn. Önnur var Viðja sem ég var að keppa á í töltinu á Flúðum en hún var svo skrítin í beisli í keppninni og svo blæddi út úr henni í lokin. Ég var líka búin að taka eftir því að henni gekk ekki vel að éta fóðurbæti eða köggla sem ég rétti henni. Það reyndist líka ástæða fyrir þessu og var tekin úr henni úlfstönn sem var að meiða hana. Svo núna er Viðja bara í fríi í nokkra daga meðan hún er að gróa eftir aðgerðina. Hin hryssan var Helena litla en hún slasaðist fljótlega eftir að hún kom á hús sem folald haustið 2008. Hún datt á svelli og það kom sprunga eða hola í hnjálið á afturfæti. Hún er búin að vera inni alveg síðan og hefur verið til meðhöndlunar hjá Páli dýralækni á Stuðlum af og til. Ekki leit út fyrir bata í fyrstu og fannst dýralæknunum að um einhvern galla gæti verið að ræða sem hefði komið í ljós eftir að hún datt. En hún var alheil áður og vann reyndar hryssuflokkinn í folaldasýningu stuttu áður en þetta gerðist. Í september fór Helena í myndatöku og þá kom í ljós að heldur væri þetta að lagast og heltin að minnka. Á þriðjudaginn var hún enn mynduð og er um talsverðann bata að ræða. Og núna megum við fara að þjálfa hana aðeins og láta hana ganga í 10 mínútur á dag í 8 daga og síðan fara að láta hana skokka aðeins í 8 vikur og koma svo aftur í myndatöku um miðjan maí. Svo er bara að vona að hún þoli að hreyfa sig og geti verið úti í sumar. Það er mikið á sig leggjandi fyrir svona vel ættaða hryssu en Helena er undan Hnotu frá Fellskoti og Álfi frá Selfossi |
Helena áður en hún slasaðist
Þessi mynd var tekin af Helenu í síðustu viku. |
| 14.mars.2010 Við tókum þátt í töltmóti Loga, Trausta og Smára í Flúðahöllinni í gær.Það gekk bara vel Líney keppti á Brá og Prins og þau komust bæði í úrslit, svo Líney varð að velja hvort hrossið hún mætti með í A-úrslitin og valdi hún Brá. Ég keppti á Viðju og komst líka í úrslit og Nína Hrefna keppti á Vordísi, komst reyndar ekki í úrslit en gekk alveg prýðilega samt. Viðja og Vordís hafa aldrei tekið þátt í keppni í reiðhöll áður svo þær voru ekki alveg nógu settlegar en þetta er ágæt æfing og einhversstaðar verður að byrja. Það eru reyndar dálítið skrítnar reglur í Flúðahöllinni því þar komast 3 hross í A-úrslit og 4 hross í B-úrslit. Svo það eru bara 7 hross sem fara í úrslit alls. Þessar reglur eru sennilega vegna þess að reiðhöllin er mjög lítil og ekki gott að hafa mörg hross inná í einu. B úrslit fullorðnir: A úrslit fullorðnir: |
María og Viðja
Líney og Brá |
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 1. mars 2010. Ég hef verið svo upptekin að vinna í bókhaldinu á kvöldin undanfarið að ég hef ekki gefið mér tíma til að setja efni inn á síðuna. En það hefur einmitt verið mikið að gerast undanfarið. Fyrsta vetrarmót Loga og Trausta var haldið í Hrísholti laugardaginn 20. febrúar. http://hestamannafelagidlogi.bloggar.is/ Líney og Nina Hrefna fóru á tamningatrippunum og það gekk bara þokkalega. Eva María fór á Krumma og lenti í öðru sæti. Ég set inn myndirfrá Vetrarmótinu þegar ég hef tíma. Annað mótið í Uppsveitardeildinni var haldið 26. febrúar s.l. í Flúðahöllinni Keppt var í fjórgangi og gekk bara nokkuð vel þó höllin sé mjög lítil. Bekkirnir voru fullsetnir og greinilegt að það er vel hægt að halda svona mót þarna inni og vel fer um áhorfendur. Úrslitin voru birt á vef Hestafrétta http://www.hestafrettir.is/Frettir/7879/ Líney var sú eina úr liðum Tungnamanna sem komst í úrslit en hún náði inn í B-úrslit. |
Eva María á Krumma frá Glæsibæ Nína Hrefna á Vordísi frá Fellskoti
|
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 22.febrúar 2010. Við fengum fréttir af því í gær að Jóhann Skúlason hefði unnið töltið á WorldCup mótinu í Óðinsvéum í gær á Hnokka frá Fellskoti. Þetta eru auðvitað mikil gleðitíðindi og verulega gaman að Hnokki skuli standa sig vel í Danmörku. Þessi frétt er frá þvi í dag í Viðskiptablaðinu á netinu. http://www.vb.is/frett/37/58768/johann-med-tvo-spadaasa-a-worldcup
Jóhann Skúlason var knapi mótsins á WorldCup í Óðinsvéum. Hann sigraði töltið á Hnokka frá Fellskoti og stóðhestakeppnina á Höfða frá Snjallsteinshöfða. Þetta eru nýir keppnishestar hjá Jóhanni. Jóhann og Hnokki fengu 8,17 í einkunn í töltinu en næsti keppandi, Julie Christiansen á Gyðju frá Skipaskaga 7,67. Sigurður Ævarsson, hestadómari, sem var á mótinu, segir að allt bendi til að Jóhann sé að undirbúa nýjan heimsmeistara í tölti. Hnokki sé kominn í afar fallegt form og hafi haft nokkra yfirburði í töltinu. "Báðir hestarnir hjá Jóhanni voru komnir í form sem einkennir þá hesta sem hann þjálfar. Hnokki verður illviðráðanlegur næstu árin ef marka má þessa fyrstu keppni þeirra. Hesturinn var verulega flottur," segir Sigurður Ævarsson.
Tölt A úrslit: 01 Johann R. Skulason / Hnokki frá Fellskoti / DK 8,17
|
Ég fann þessa mynd á síðunni hjá núverandi eiganda Hnokka http://www.skovbogaard.com/ |
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 15. febrúar.2010. Í dag var mjög hvasst og ekkert sérstaklega gott að ríða út. Við fórum þó öll á bak fram að kaffi. Eftir að hafa fengið okkur kaffi og auðvitað rjómabollur fórum við með hrossin í rekstur. Þau hafa mjög gott af að hlaupa laus og þjálfunin verður bara fjölbreyttari. Við notuðum það sem eftir var af deginum í járningar og þjálfun inni. |
Nína , Líney og Jóhann.
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 7. febrúar 2010. Ég fór með tvær hryssur á sölusýningu í Hestheimum í dag. Sýningin tókst nú ekkert sérstaklega vel því þær hafa aldrei komið í reiðhöll áður og voru hoppandi og skoppandi þarna inni. Ég fór einmitt að hugsa um það á heimleiðinni hvað allt væri miklu auðveldara ef við hefðum reiðhöll hér heima. Það kostar ekkert að láta sig dreyma. Skráð voru 19 hross á sýninguna og er það með færra móti. Áhorfendur voru ekki margir og ég held að þeir hafi flestir verið áhangendur söluhrossanna frekar en kaupendur. Hryssurnar sem ég fór með voru Dagrenning frá Bjarnastöðum en það er bleikskjótt 9 vetra hryssa undan Hilmi frá Sauðárkróki og Hjördísi frá Bjarnastöðum . Dagrenning er skemmtileg fimmgangshryssa með góð gangskil og ágætlega rúm á gangi. Og ekki spillir að hún er falleg og flott á litinn. Hin hryssan sem ég fór með er Viðja frá Fellskoti, brún hryssa undan Moldu frá Viðvík og Glampa frá Vatnsleysu. Viðja er mjög efnileg 5 vetra hryssa létt og skemmtileg með góðar hreyfingar. Ætlunin var að hún yrði keppnishesturinn hennar Evu Maríu en hún er orðin full viljug fyrir hana svo við skráum hana bara á sölu. Sigurlína tók myndir af þeim á sölusýningunni í dag og læt tvær fylgja hér með. |
Dagrenning frá Bjarnastöðum
Viðja frá Fellskoti
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 6. febrúar 2010. Við skelltum okkur í rekstur með megnið af hrossunum í dag. Við erum búin að útbúa frábæra aðstöðu til að reka hrossin, hring sem er um 3 km. og er afgirtur alla leiðina svo ekkert þarf að hafa fyrir hrossunum. Auðvitað mætti leiðin vera lengri en þá förum við bara hringinn tvisvar. Þau hafa mjög gott af smá tilbreytingu og frískast við að taka sprettinn saman. Ég trúi að við eigum eftir að reka vikulega hér eftir |
Folöldin fengu ekki að fara með. |
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 3. febrúar 2010. Loksins lét ég verða af því að taka mynd af tamningarhrossum. Núna er allt frosið og kanske full hart til að hægt sé að segja að reiðfærið sé gott. Alltaf er maður að kvarta yfir einhverju. En tamningar ganga mjög vel . Sum hrossin hafa tekið miklum breytingum, til batnaðar auðvitað og eru komin í gott form. Stór hluti af þessum hrossum sem við erum núna að temja eru í gangsetningu og flest á fimmta vetur. Hesturinn sem Líney situr á myndinni heitir Sesar frá Röðli og kom hingað í tamningu fyrir þremur vikum. Reyndar var hann hérna líka í sumar í tamningu hjá Rósu Birnu. Faðir hans er Áll frá Birgisskarði og móðir Gusa frá Röðli. Eigandinn er Jón Sergio Sigurðsson ungur drengur sem er sérstaklega áhugasamur um hesta. |
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 30. janúar 2010. Fyrir stuttu síðan var ákveðið að hafa mótaröð í Flúðahöllinni og kalla það Uppsveitadeildina.Við Líney erum báðar í deildinni og var fyrsta mótið í gærkvöldi og keppt í smala. Þetta var bara skemmtilegt og tókst vel. Keppendur voru 18 og voru riðnar tvær umferðir. Mér sýnist eftir að hafa horft á Smalann hjá Meistaradeild Vís á netinu að brautin hjá okkur hafi verið öllu erfiðari en úrslit fóru þannig að í efsta sæti var Aðalheiður Einarsdóttir á Mola frá Reykjum, annar varð Guðmann Unnsteinsson á Giftu frá Grafarkoti og þriðja Guðrún Magnúsdóttir á Snæfaxa frá Bræðratungu. Staðan í einstaklingskeppninni Staðan í liðakeppninni |
Líney í brautinni
Efstu keppendur í Smala
Riðið í kringum tunnurnar
Liðin kynnt. |
| 23. janúar 2010. Ég eyddi hluta út deginum í að skoða aðstöðuna í Hólaborg hjá Ingimar Baldvinssyni og fjölskyldu. En þar var verið að opna sjúkra og þrekþjálfunarmiðstöð fyrir hesta. Fólk byrjaði að streyma að kl. 14.00 og kl. 15.00 byrjaði dagskrá með ræðuhöldum og síðan voru hestar settir bæði á göngubretti með vatni og hringþjálfunargerði þar sem 4 hestar geta gengið eða hlaupið samtímis. Á eftir fóru sumir þeirra á vibragólfið en það titrar allhressilega. Ég prófaði að standa þar smástund og það er sérkennileg tilfinning. Aðstaðan er stórglæsileg og greinilegt að fólk kann að meta þessa aðstöðu og nú þegar eru þar margir hestar í meðferð. Þarna fer mjög vel um hestana tandurhreinir í rúmgóðum stíum. Veitingar voru eins og í fermingarveislu. |
Ég tók þessa mynd á símann
minn þar sem sést inneftir reiðhöllinni. |
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 22. janúar 2010. Brjálað að gera í tamningum. Við ríðum út allan daginn alveg fram í myrkur og náum með því móti að komast yfir allan hópinn, Hrossin fara vel af stað og öll komin í frjálsa reið nema 3 aðkomuhross sem eru ekki alveg tilbúin en samt komin í reið inni. Verst er að reiðfærið hefur verið full þungt og vegna rigninga undanfarið hefur reiðvegurinn verið aur og leðja, en nú er að byrja að síga úr honum bleytan. Það er eiginlega fyndið að hugsa til þess að nú skuli vera janúar og reiðfærið eins og að vori þegar frostið er að fara úr jörðu. Ég er að vona að frjósi svo við getum farið í rekstur með allan hópinn. |
Riðið út alveg fram í myrkur
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 17. janúar. 2010. Við fórum með Spes aftur upp að Árbakka á föstudaginn, en hún verður þar í vetur hjá Hinna og Huldu. Hún var búin að vera þar í tamningu í haust en kom heim í smá jólafrí og nú er fríið búið. Spes er á fimmta vetur og stefnt með hana í dóm í vor. Hún er fyrsta afkvæmið sem við temjum undan Hnokka og ef afkvæmin undan honum líkjast Spes þá þykir mér verst að hafa ekki fengið fleiri áður en hann fór út. |
Líney að teyma Spes á kerruna. |
| 14. janúar. 2010. Nú eru tamningar komnar á fullt eftir jólafrí og búið að járna um 40 hross svo það er fjör í hesthúsinu hérna núna. Við erum búin að fá 2 aðstoðar tamningarmenn Nínu Hrefnu og Jóhann Pétur svo okkur tekst að komast yfir að temja og þjálfa þennan hóp, nokkur hrossanna eru reyndar tamin og hin flest öll reiðfær. Ég hef verið löt að taka myndir en verð nú að fara að drífa mig út með vélina. En ég fékk sendar myndir af stóðhesti sem við seldum til Danmerkur. Hann er 4 vetra og heitir Silfurgeisli frá Fellskoti og er undan Evu frá Skarði og Eið frá Oddhóli. Eigendur eru Lone Högholt og fjölskylda. Siflurgeisli er búinn að vera í tamningu hjá Jóhanni Skúlasyni síðan í september og það er stefnt með hann í sýningu í apríl. Silfurgeisli varð strax bráðþroska og ég fór með hann í byggingardóm tveggja vetra svona meira til gamans og hann fékk bara þokkalegan dóm 7.90 það var helst fætur og fótagerð sem dómararnir sögðu að væri ekki gott að stiga,þar sem hann væri svo ungur. Spennandi að sjá hvaða tölur hann fær í vor. |
Silfurgeisli í Danmörku
|
| 4. janúar. 2010. Nú eru jólin og áramótin liðin og við erum búin að fylla hesthúsið. Við slepptum út 5 af 3ja vetra trippunum en ætlum að temja 3 hryssur aðeins lengur og sjá hvernig þær koma út með meiri tamningu. Næstu dagar fara í að járna og koma hrossunum af stað í þjálfun en öll eru eitthvað tamin en auðvitað mismikið eftir aldri. Hljómur fór í október til Guðmundar Björgvinssonar í Kirkjubæ og hann kom heim í jólafrí en fer fljótlega aftur til Guðmundar. Hljómur er undan Hnotu frá Fellskoti og Huga frá Hafsteinsstöðum. |
Hljómur í hryssustóði í Skálholti s.l. sumar
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 17. des. 2009. Best að nota tímann og setja meira inn á síðuna. Þessi rauðblesótta hryssa er Dís frá Reykjavík. Hún er undan Sóloni frá Hóli og List frá Strandarhöfði. Dís er kattmjúk og gangfallegt trippi. Hún kemur okkur nokkuð á óvart því hún lét alltaf svo lítið yfir sér í stóðinu og því voru ekki miklar væntingar þegar byrjað var á henni. Hún er þæg og gerir allt vel sem hún er beðin um. Auðvitað eru þessar myndir ekkert sérstakar, bara teknar þegar trippin voru komin út í gerði. Ég nennti ekki að fylgja þeim eftir og taka myndir þegar þau voru komin út á reiðveg en sennilega hefði ég getað fengið betri myndir þar. En þessar verða að duga núna. |
Líney og Dís.
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 17.des. 2009. Jæja þá get ég sett in á síðuna aftur. Er búin að vera í tölvubasli þessa dagana. En nú er allt komið í lag aftur. Já ég var að setja inn myndir af þriggja vetra trippunum og hér kemur næsta mynd. Þessi hryssa heitir Dýna frá Höskuldsstöðum. Hún er risastór og fer aðallega um á stórstígu brokki og er alveg þæg. Þessi hryssa er ættuð út af Kolfinni frá Kjarnholtum í föðurætt og Hervari frá Sauðárkróki í móðurætt. Við keyptum hana folald í Skrapatungurétt og keyptum reyndar tvær hryssur þá. Dýna er þrælfalleg hryssa kanske full feit núna en það mjakast nú af henni með tímanum. |
Líney og Dýna.
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 29.nóv.2009. Ég tek alltaf myndir af tamningartrippunum þegar þau eru komin í reið. Auðvitað eru þau ekkert flott fyrst, hafa lítið jafnvægi með knapann og eru ekki alltaf sátt með stefnuna en samt er bara gaman að sjá þau undir manni og spá í ganglag og hreyfingar. Mörg breytast mikið þegar þau eru járnuð í fyrsta sinn og flest brokka betur. Hér er Líney á Dropa fola á fjórða vetur undan Djásn frá Bergstöðum og Þorra frá Þúfu. Við höfum verið heppin með afkvæmi undan Þorra og alltaf fengið fallegt undan honum og vel viljug og skemmtileg reiðhross. Dropi er annað afkvæmi undan Djásn sem við temjum. Við byrjuðum á Draum 4 v. undan Gígjari og Djásn í sumar og hann reyndist strax efni í góðan reiðhest og ekki verður Dropi síðri og við sjáum að Djásn mun gefa mjúk og vel geng hross með góða fótlyftu. |
Líney á Dropa
|
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 28.nóv.2009. Líney skrapp í nýju Reiðhöllina á Flúðum til að æfa undir prófið í "Reiðmanninum". Hún er einmitt núna þessa helgi á Miðfossum í prófi. Hún valdi Prins frá Fellskoti sem nemendahest. Hann er 6 vetra undan Hrynjanda frá Hrepphólum og Lokkadís frá Bergstöðum. Prins er ágætur reiðhestur með góðar gangtegundir en í þessu námi dugar það skammt hann verður að vera mjög jákvæður líka og meira er riðið á baug en beint áfram svo stundum finnst honum nóg um og vill helst hætta við allt saman. Vonandi gengur Líneyju og Prins vel í prófinu. Ég tók þessa mynd af þeim á Flúðum í vikunni. |
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 26. nóv. 2009 Það var fjölmennt á Klettinum þegar Hrossaræktarfélag Biskupstungna hélt aðalfund , sviðaveislu og uppskeruhátíð 25.nóv. s.l. eða um 65 % félagsmanna sem mættu. Þetta var skemmtilegt kvöld og eftir fundarstörf var sest að snæðingi og síðan veitt verðlaun fyrir hæst dæmdu kynbótahross 2009. Öll voru hrossin sýnd á Gaddastaðaflötum. Gaumur frá Dalsholti er aðeins 4 vetra og Njáll frá Friðheimum 5 vetra en hin eru eldri. Einnig var í fyrsta sinn veitt afreksverðlaun en það eru verðlaun sem verða eftirleiðis veitt þeim sem hefur ræktað heimsmeistara, landsmótssigurvegara eða íslandsmeistara. Gestur kvöldsins var Sveinn Steinarsson Litla-Landi formaður Hrossaræktarsamtaka Suðurlands og var hann með fróðlegt og skemmtilegt erindi um samtökin og um eigin ræktun Öll fréttin Myndir |
Afreksverðlaunin fékk Magnús Einarsson, Ræktunarstyttuna fyrir efsta stóðhest fékk Knútur Ármann og Ræktunarstyttuna fyrir efstu hryssu fékk Jón Sigurbjörnsson |
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 23. nóv. 2009 Ég sé ekki betur en Vinur sé nauðalíkur Vals bróður sínum en vinur er foli á fjórða vetur sem er verið að temja. Hann er moldóttur eins og Vals og mér sýnist að hann muni hreyfa sig með sama fjaðurmagninu. Vinur er undan Moldu gömlu og Dyn frá Hvammi. Þessi litur er í miklu uppáhaldi hjá mér og mætti sú gamla alveg gefa okkur fleiri moldótt,en þau geta nú varla orðið mörg því hún verður 26 vetra næsta vor. Reyndar er hún fylfull eftir Auð frá Lundum og kemur örugglega með brúnt afkvæmi því það hefur hún alltaf gert ef faðirinn er brúnn. |
Líney á Vin í gerðinu í dag.
|
| 20.nóv. 2009 Á þessum tíma er frekar rólegt í hestamennskunni. Á flestum hrossaræktarbúum er núna verið að frumtemja og svo eru alltaf einhver söluhross í þjálfun og keppnishrossin eru sumstaðar að tínast inn. Hér er verið að frumtemja 8 hross sem eru öll á fjórða vetur. Við byrjuðum á þeim í lok október svo þau hafa verið í þjálfun núna í tæpan mánuð. Þau eru komin í reið og öll þæg og auðveld. Ekki er enn búið að ákveða hver fara aftur út en við höldum sennilega áfram með sumar hryssurnnar. Ég var búin að segja frá því hér áður hvaða 5 hryssur eru í þessum hópi en hestarnir eru 3 Dropi undan Djásn frá Bergstöðum og Þorra frá Þúfu, Vinur undan Moldu frá Viðvík og Dyn frá Hvammi og Bjartur undan Drift frá Bergstöðum og Dyn frá Hvammi. |
Líney á Dropa
|
| 12.nóv. 2009. Við systkynin frá Fellskoti hittumst í gær 11.nóv. í gamla húsinu í Fellskoti í tilefni af því að faðir okkar Þórarinn Guðlaugsson hefði orðið 100 ára þennan dag ef hann hefði lifað en hann dó 90 ára gamall 1999. Okkur fannst tilvalið að hittast og borða saman og auðvitað völdum við að hafa á borðum hangikjöt enda ekki sjaldan sem það var soðið í þessu húsi. Þetta var virkilega gaman og frábært að rifja upp gamla daga og skoða gamlar myndir. Meðfylgjandi mynd var tekin við þetta tækifæri. |
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 31.okt. 2009 Folaldasýning Hrossaræktarfélags Biskupstungna var í dag í nýju reiðhöllinni á Flúðum. Sýningin tókst mjög vel folöldin voru glæsileg og töluverður fjöldi áhorfenda. Dómarar voru Páll Bragi Hólmarsson og Steindór Guðmundsson og þökkum við þeim kærlega fyrir. Þeir stiguðu folöldin bæði fyrir byggingu og hæfileika af mikilli vandvirkni og lýstu síðan dómunum. Frábært að fá mat á bygginguna líka ekki bara hreyfingarnar, en við áhorfendur getum alltaf myndað okkur skoðun á hverning þau sprikla um salinn. Hestfolöldin voru mun betri almennt heldur en hryssurnar og þær voru líka meira en helmingi færri. Aðstaðan í reiðhöllinni er mjög góð og höllin er að mestu leiti fullbúin. Við fórum með eitt hestfolalald undan Djásn og Hruna frá Breiðumörk og merfolald undan Sokkadís og Leikni frá Vakursstöðum sem Haukur Daðason á og hún lenti í öðru sæti. Úrslit: |
Efsta merfolaldið Melrós frá Bræðratungu undan Keili frá
Miðsitju og Sif frá Bræðratungu. |
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 26. okt.2009. Ég ákvað að fylgjast með í morgun þegar Líney var að lónsera tamningartrippin. Þau eru öll þæg og meðfærileg og brokka vel og flest grípa í tölt. Vegna þess hve langan tíma tók að mála hesthúsið þá eru þau ekki komin langt í tamnningu, en við stefnum á að gera þau reiðfær fyrir jól. Hryssurnar eru 5. Erika undan Eik Fellskoti og Þorra frá Þúfu, Líf undan Lögg Fellskoti og Þokka frá Kýrholti, Dís undan Sólon frá Hóli og List frá Strandarhöfði, Drottning undan Brynhildi og Prins frá Höskuldsstöðum og Dýna undan Tóni og Þokkadís frá Höskuldsstöðum. |
Líney setur múl á Eriku.
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 25. okt. 2009 Hinn árlegi hnakkaþrifa dagur hjá Æskulýðsdeild Loga var s.l. föstudag hér í Fellskoti. Ákveðið var að vera í gamla hesthúsinu því þá gætu allir verið saman því það er frekar stórt tekur 20 hesta en er bara gamalt bása hesthús en allavega langtum stærra en baðaðstaðan. En krakkarnir voru örugglega 40 eða fleiri svo ekki veitti af plássinu. En samt tókst þetta mjög vel og það tók um klukkutíma að þrífa og bera á bæði hnakka og beisli. Eftir veitingar og fræðslu um "Grundvallaratriði í hestamennsku " sem var frábær stuttmynd eftir Guðrúnu Gígju og Freydísi Höllu fóru krakkarnir heim með skínandi hrein reiðtygi. |
Hér er ein ung dama með
hrein og fín reiðtygi. |
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
|
19. okt.2009
Hér er auglýsing frá Hrossaræktarfélagi Biskupstungna: Þá er vetarstarf Hrossaræktafélags Biskupstungna að hefjast og fyrsti viðburður vetrarins er: Folaldasýning þann 31 október í nýju reiðhöllinni á Flúðum kl. 14:00 Öll folöldin verða dæmd og veitt verða verðlaun fyrir frambærilegustu gripina. Aðgangur ókeypis Skráning folalda síðastalagi 29 október, skráningargjald er kr 1500 á folald: María 8999612 - fellskot@simnet.is og Kjartan 486 8944 ksb@internet.is. Nýjir félagar boðnir velkomnir Stjórnin Dagskrá í nóvember : Sviðaveisla og Aðalfundur |
|
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 15. okt. 2009 Loksins er lokið öllu viðhaldi á hesthúsinu og aðstöðunni. Búið er að háþrýstiþvo allt og mála. Gera þurfti við milligerðir í stíum og ýmislegt annað sem þurfti að laga. Svo nú er allt orðið tandurhreint og fínt og tilbúið til að taka inn fleiri hross. Nokkur hross eru inni og þau hafa verið færð fram og til baka meðan á þessu veseni stendur. |
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 9. okt. 2009 Við rákum heim ógeltu ungfolana til að ákveða hvaða fola ætti að gelda. Fjórir eru tveggja vetra síðan í vor og hinir eru allir veturgamlir. Þessir folar eru allir undan góðum fyrstu verðlauna stóðhestum, Aroni frá Strandarhöfði, Hnokka frá Fellskoti, Hróðri frá Refstöðum, Huga frá Hafsteinsstöðum, Stála frá Kjarri, Roða frá Múla, Borða frá Fellskoti, Kjarna frá Þjóðólfshaga og Leikni frá Vakursstöðum. Þeir hefðu sumir örugglega montað sig meira ef þeir hefðu vitað hvað til stóð og örugglega sýnt okkur allt það besta sem þeir gátu til að halda kúlunum. Þrír fengu geldingardóm strax og aðrir þrír bera verulega af hópnum bæði byggingarlega séð og svo eru þeir með bæði góðar hreyfingar og fótlyftu og fallega gengir bæði á tölti og brokki. En það er erfitt að gera upp á milli hinna svo við bíðum bara með þá til vorsins. |
Flótti heitir þessi veturgamli
foli og er undan Hnokka frá Fellskoti og Lokkadís frá Bergstöðum. |
| 27. sept. 2009 Lítið er að gerast hér þessa dagana, hrossin flest í fríi og búið að draga undan öllum þeim hrossum sem verið var að temja í sumar og um mánaðarmótin tökum við inn frumtamningartrippin. Eva María átti afmæli 25. sept. og var auðvitað afmælisveisla. Nú er heimasætan orðin 10 ára og hér á myndinni eru þær saman frænkurnar Eva María og Guðrún Birna að skoða afmælisgjafirnar. |
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 26. sept. 2009 Veðrið hefur verið mjög vont í dag, gengið á með hagléli og bara skítkalt. Það er búið að vera mjög gott veður í haust, en auðvitað hlaut að koma að því að kólnaði og haustlægðirnar færu að birtast. En nú styttist í að við byrjum að temja trippin sem eru á 4. vetur. Við sóttum þau heim um síðustu mánaðarmót og höfum verið að grenna þau aðeins, því þau voru mjög feit eftir allt ofátið í sumar. Þetta eru 8 trippi 5 hryssur og 3 hestar og öll þokkalega falleg. Við erum að hreinsa hesthúsið og ætlum að laga það sem þarf áður en við tökum þau inn. |
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
| 23.sept.2009 Prins frá Fellskoti heitir þessi hestur. Hann er 6 vetra og er undan Hrynjanda frá Hrepphólum og móðir hans er Lokkadís frá Bergstöðum. Prins er ágætur reiðhestur og hefur góðar hreyfingar. Líney ætlar að nota hann sem nemendahest í Reiðmanninn á Hvanneyri í vetur. En h?%B |
